03/10/2026 | Press release | Distributed by Public on 03/10/2026 12:47
Réttlæti án hindrana var yfirskrift hliðarviðburðar íslenskra stjórnvalda í samvinnu við stjórnvöld í Þýskalandi og Kenía og Kvennanefnd Sameinuðu þjóðanna (UN Women) á Kvennanefndarfundi Sameinuðu þjóðanna CSW70 í dag. Fjallað var um sameiginlegar áskoranir þjóðanna í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi, lærdóm þeirra af því að nýta ólíkar leiðir í þeirri baráttu, forvarnir gegn kynbundnu ofbeldi, stuðning við þolendur og árangur af alþjóðlegu samstarfi.
Í ávarpi sínu sagði Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra og ráðherra jafnréttismála, að þrátt fyrir að Ísland hefði um árabil verið fremst meðal þjóða á sviði jafnréttismála væri enn mikið svigrúm til úrbóta þegar kemur að því að uppræta kynbundið ofbeldi.
"Saga Íslands í jafnréttismálum er árangurssaga. En þegar við horfum til kynbundins ofbeldis blasir önnur mynd við. Kynferðisofbeldi er allt of algengt og það er óásættanlegt. Við þurfum að vera stöðugt vakandi, líta ekki á árangur okkar sem sjálfsagðan hlut og halda áfram að ýta við hlutunum þar til raunverulegur árangur næst, " segir ráðherra.
Þá sagði ráðherra að á síðustu misserum hefðu stjórnvöld ráðist í fjölmargar aðgerðir sem miða að því að bæta meðferð kynferðisbrota og styrkja stöðu þolenda. Meðal þeirra aðgerða sem ráðherra nefndi eru umbætur á rannsókn kynferðisbrota, stytting málsmeðferðartíma, breytingar innan dómskerfisins, markvissari stuðningur við þolendur kynbundins ofbeldis og úrræði sem beinast að gerendum.
Ráðherra benti jafnframt á að fleiri aðgerðir væru í undirbúningi eða þegar komnar til framkvæmda. Meðal aðgerða nefndi ráðherra frumvarp sitt sem heimilar rafrænt eftirlit, svo sem með ökklaböndum, með einstaklingum sem sæta nálgunarbanni eða brottvísun af heimili. Þá verður í fyrsta sinn kynnt landsáætlun um aðgerðir við kynbundnu ofbeldi kynnt á næstunni sem inniheldur 25 aðgerðir til að sporna við kynbundnu ofbeldi gegn konum.
Frá viðburðinum á Kvennanefndarfundi Sameinuðu þjóðanna í dag
Á viðburðinum flutti Karin Prien, ráðherra mennta-, fjölskyldu-, öldrunar-, kvenna- og ungmennamála í Þýskalandi einnig ávarp. Þá tóku þær Dorcas Agik Oduor dómsmálaráðgjafi ríkisstjórnar Kenía (e. Attorney General), Sigríður Björk Guðjónsdóttir, sérfræðingur á sviði kynbundins ofbeldis í dómsmálaráðuneyti Íslands og fyrrverandi ríkislögreglustjóri, og Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastjóri UN Women á Íslandi þátt í pallborðsumræðum.
Fundarstjóri var Kalliopi Mingeirou, stjórnandi skrifstofu UN Women um útrýmingu ofbeldis gegn konum og stúlkum.