07/16/2026 | Press release | Distributed by Public on 07/16/2026 08:25
Jean-Noël Barrot, utanríkisráðherra Frakklands, er væntanlegur í opinbera heimsókn til Íslands á mánudaginn, þ.e. 20 júlí nk.
Við komuna til landsins hyggst ráðherrann kynna sér starfsemina sem fram fer á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli, en þaðan heldur hann til Reykjavíkur á tvíhliða fund með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra, sem fram fer í húsnæði utanríkisráðuneytisins við Austurhöfn.
Að fundinum loknum hyggjast ráðherrarnir skrifa undir sameiginlega viljayfirlýsingu um aukið tvíhliða samstarf ríkjanna og í framhaldinu verður efnt til blaðamannafundar.
Því næst heldur ráðherrann ásamt sendinefnd í Hellisheiðarvirkjun til að kynna sér starfsemina sem þar fer fram. Dagskrá hans á Íslandi lýkur svo á heimsókn á Þingvelli þar sem hann fær leiðsögn um þjóðgarðinn og snæðir að lokum kvöldverð með utanríkisráðherra í forsætisráðherrabústaðnum.