Á fundi ríkisráðs á Bessastöðum í gær var fallist á tillögur um að veita Svandísi Svavarsdóttur, Guðmundi Inga Guðbrandssyni og Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur lausn frá ráðherraembættum sínum.
Einnig staðfesti forseti Íslands breytingu á forsetaúrskurði um skiptingu starfa ráðherra. Eftir breytingarnar er skipan ráðherra í ríkisstjórninni eftirfarandi:
-
Bjarni Benediktsson fer með forsætisráðuneytið, félags- og vinnumarkaðsráðuneytið og matvælaráðuneytið.
-
Sigurður Ingi Jóhannsson fer með fjármála- og efnahagsráðuneytið og innviðaráðuneytið.
-
Guðlaugur Þór Þórðarson fer með umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið.
-
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fer með utanríkisráðuneytið.
-
Lilja Dögg Alfreðsdóttir fer með menningar- og viðskiptaráðuneytið.
-
Ásmundur Einar Daðason fer með mennta- og barnamálaráðuneytið.
-
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir fer með háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið.
-
Willum Þór Þórsson fer með heilbrigðisráðuneytið og verður einnig samstarfsráðherra Norðurlanda.
-
Guðrún Hafsteinsdóttir fer með dómsmálaráðuneytið.