05/26/2026 | Press release | Distributed by Public on 05/26/2026 10:50
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra fundaði í dag í utanríkisráðuneytinu með bandarísku öldungadeildarþingkonunum Lisu Murkowski, repúblíkana og Catherine Cortez-Masto, demókrata. Öldungadeildarþingkonurnar tvær komu til Íslands til þess að kynna sér stefnu íslenskra stjórnvalda í málefnum norðurslóða og ræða samskipti Íslands og Bandaríkjanna. Á fundi þeirra með utanríkisráðherra var áhersla á öryggis- og varnarmál á norðurslóðum, málefni Úkraínu, tvíhliða samskipti ríkjanna og tækifæri á sviði viðskipta s.s. samstarf við Ísland í nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa.
"Það var ánægjulegt að taka á móti Murkowski og Cortez-Masto hér í Reykjavík. Heimsókn þeirra undirstrikar ríkan áhuga á Bandaríkjaþingi á okkar nærsvæðum og mikilvægi þess að norðurslóðaríki vinni náið saman að brýnum hagsmunum í okkar heimshluta," segir Þorgerður Katrín. "Ég kynnti vitaskuld fyrir þeim áherslur Íslands í málefnum norðurslóða, nýja stefnu Íslands í varnar- og öryggismálum, en svo ræddum við djúp tengsl ríkjanna tveggja allt frá lýðveldisstofnun til dagsins í dag. Mikilvægt er að rækta það samband."