Central Bank of Iceland

02/18/2026 | Press release | Distributed by Public on 02/18/2026 07:59

Uppfærður listi yfir ríki sem teljast áhættusöm og ósamvinnuþýð

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur uppfært lista á vef Seðlabankans yfir ríki sem teljast áhættusöm og ósamvinnuþýð, sbr. 6. gr. laga nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

Á listanum er annars vegar um að ræða ríki sem Alþjóðlegi fjármálaaðgerðahópurinn (e. Financial Action Task Force, FATF) hefur tilgreint sem áhættusöm og eftir atvikum ósamvinnuþýð og hins vegar ríki sem Evrópusambandið hefur tilgreint sem áhættusöm þriðju lönd, sbr. reglugerð nr. 1221/2025 um breytingu á reglugerð um áhættusöm þriðju lönd vegna aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, nr. 105/2020.

FATF eru alþjóðleg samtök sem hafa það m.a. að markmiði að setja tilmæli vegna aðgerða gegn peningaþvætti, fjármögnun hryðjuverka og fjármögnun gereyðingarvopna. Meðal verkefna samtakanna er að tilgreina ríki sem teljast áhættusöm og eftir atvikum ósamvinnuþýð, sjá nánar á heimasíðu FATF.

Að þessu sinni er um að ræða breytingar á lista FATF yfir áhættusöm ríki vegna peningaþvættis og fjármögnun hryðjuverka en Kúveit og Papúa Nýja-Gínea bætast við listann.

Sjá nánar:

Central Bank of Iceland published this content on February 18, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on February 18, 2026 at 13:59 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]