02/23/2026 | Press release | Distributed by Public on 02/23/2026 06:23
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, verður á Egilsstöðum fimmtudaginn 26. febrúar þar sem hún býður upp á samtal við íbúa um utanríkisþjónustuna og hvernig hún þjónar hagsmunum Íslands, bæði heima og erlendis.
Um er að ræða ferðaröð ráðherra um landið en áætlunin er að færa samtalið um utanríkismál nær fólkinu í landinu og gera grein fyrir því hvernig utanríkisþjónustan beitir sér daglega á alþjóðavettvangi í þágu heimilanna, neytenda og fyrirtækja um land allt.
Opinn viðtalstími með utanríkisráðherra í Sláturhúsinu - fimmtudaginn 26. febrúar kl. 11.00 - 14.00.