01/13/2025 | Press release | Distributed by Public on 01/13/2025 10:55
Umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytið er með í undirbúningi uppfærslu á fjórðu skýrslu Íslands um innleiðingu Árósarsamningsins. Skýrslan verður unnin í samráði við umhverfisverndarsamtök, auk þess sem ráðuneytið tekur einnig við öllum ábendingum frá almenningi um efni hennar.
Ísland fullgilti í október 2011 Árósarsamninginn um aðgang að upplýsingum, þátttöku almennings í ákvarðanatöku og aðgang að réttlátri málsmeðferð í umhverfismálum. Þar með varð Ísland fullgildur aðili að samningnum og því starfi sem tengist honum. Auk aðildarríkjaráðstefnu sem og ríkjafundum sem haldnir eru árlega eru á vettvangi samningsins reknir vinnuhópar um helstu málefni samningsins, þ.e. aðgang að upplýsingum, þátttökuréttindi almennings og aðgang að réttlátri málsmeðferð.
Á fjögurra ára fresti ber aðildarríkjum að skila aðildarríkjaskýrslu til skrifstofu samningsins þar sem farið er yfir stöðu innleiðingar ákvæða samningsins í viðkomandi ríki. Mikilvægt er að öll sjónarmið komi fram, bæði sjónarmið stjórnvalda, almennings og félagasamtaka sem nýta sér þann rétt sem aðild að samningnum veitir.
Síðast skiluðu aðildarríkin, Ísland þar á meðal, skýrslu árið 2021. Nú er komið að því að aðildarríkin skili skýrslum sínum að nýju, sem verða til umræðu á næsta aðildarríkjaráðstefnu samningsins.
Umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytið vill vekja athygli á því að unnið er að undirbúningi skýrslu Íslands sem skilað verður á þessu ári. Ráðuneytið væntir þess að fljótlega verði birt í samráðsgátt drög að skýrslunni til kynningar og athugasemda, en auk þess mun ráðuneytið eiga sérstakt samráð við umhverfisverndarsamtök um efni hennar. Ráðuneytið hvetur alla þá sem áhuga hafa að koma með ábendingar eða tillögur varðandi væntanlega skýrslu. Tekið verður við almennum ábendingum og athugasemdum til og með 31. janúar nk. á [email protected] auk þess sem unnt verður að gera athugasemdir við drög að skýrslunni þegar þau verða birt í samráðsgátt.