Government Offices of Iceland

03/23/2026 | Press release | Distributed by Public on 03/23/2026 12:51

Utanríkisráðherra fundaði með ráðamönnum í Portúgal

Tvíhliða samskipti Íslands og Portúgal, mikilvægi áframhaldandi stuðnings við Úkraínu, staða mála í Mið-Austurlöndum, og samstarf á vettvangi Atlantshafsbandalagsins voru efst á baugi á fundi Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og Paulo Rangel, utanríkisráðherra Portúgal, sem fram fór í Lissabon í dag. Þá greindi utanríkisráðherra Íslands frá fyrirhugaðri þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið.

"Ísland og Portúgal eru vinaþjóðir til áratuga sem báðar leggja áherslu á virðingu fyrir alþjóðalögum, lýðræði og mannréttindum. Tvíhliða samstarf landanna er gott og fer vaxandi, enda fer sýn okkar og hagsmunir sem strandríki við Atlantshafið oft saman," segir Þorgerður Katrín. "Ég tel að það séu fjölmörg tækifæri til að auka samstarf ríkjanna enn frekar, ekki síst á sviði viðskipta og nýsköpunar, en útflutningstekjur Íslands gagnvart Portúgal fara hækkandi og þá ferðast þúsundir Íslendinga til Portúgal á hverju ári."

Þorgerður Katrín þakkaði starfsbróður sínum sömuleiðis fyrir framlag Portúgal til loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins á Íslandi, en flugher landsins hefur staðið vaktina hérlendis í tvígang, árin 2012 og 2022.

Áréttuðu mikilvægi norðurslóða fyrir sameiginlegar varnir

Síðdegis átti Þorgerður Katrín svo fund með Nuno Melo, varnarmálaráðherra Portúgal, þar sem gjöfult samstarf ríkjanna á vettvangi Atlantshafsbandalagsins og komandi leiðtogafundur bandalagsins, stuðningur Portúgal við Úkraínu og öryggis- og varnarsamstarf innan Evrópu voru í brennidepli.

"Ísland og Portúgal eru stofnríki að Atlantshafsbandalaginu og deila verulegum hagsmunum af öryggi og vörnum á Norður-Atlantshafi. Í því sambandi fagna ríkin aukinni vitund innan bandalagsins um mikilvægi norðurslóða fyrir sameiginlegar varnir okkar allra," segir Þorgerður Katrín. "Þá deilum við þeirri skoðun að hvergi megi hvika frá stuðningi við varnarbaráttu Úkraínu gegn landvinningastríði Rússlands og að Evrópa eigi að eiga sæti við samningaborðið er kemur að mögulegum friði."

Government Offices of Iceland published this content on March 23, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on March 23, 2026 at 18:51 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]