Prime Minister's Office of Iceland

04/22/2026 | Press release | Distributed by Public on 04/22/2026 11:20

Ríkisstjórnin leggur til breytingu á lögum um laun kjörinna fulltrúa og embættismanna

Ríkisstjórnin hefur samþykkt framlagningu frumvarps fjármála- og efnahagsráðherra um breytingu á lögum um laun þjóðkjörinna fulltrúa og embættismanna. Með frumvarpinu er lagt til að lögfest verði varanlegt viðmið um uppfærslu launa þessa hóps og að laun hópsins hækki um 3,5% 1. júlí nk. í stað 9,7% hækkunar að óbreyttu.

"Með þessu lagafrumvarpi setur ríkisstjórnin mikilvægt fordæmi. Þetta fyrirkomulag sem verið hefur síðustu ár hefur ekki virkað sem skyldi. En nú breytum við lögunum þannig að launaþróun þjóðkjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna ríkisins taki betur mið af almennri þróun launa í landinu. Þetta er jákvæð og tímabær breyting sem má þakka vandaðri vinnu starfshóps forsætisráðuneytisins og nánu samráði við verkalýðshreyfinguna og fulltrúa atvinnurekenda," segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra.

"Fyrst um sinn tryggjum við að launin hækki að hámarki um 3,5% á árunum 2026-2028, sem má segja að leiðrétti þá skekkju sem myndast hefur á síðustu árum, en þar á eftir tekur nýja fyrirkomulagið gildi og verður reynslan af því metin fyrir lok árs 2031," segir Kristrún.

"Fyrirkomulagið sem við leggjum til er til stórkostlegra bóta frá því sem nú gildir. Það hefur lengi verið samstaða á þinginu um að viðmið við uppfærslu launa skuli vera með þessum hætti. Þá er sérstaklega mikilvægt að við styðjum bæði við stöðugleika á vinnumarkaði og sýnum ábyrgð á tímum verðbólgu og hárra vaxta," segir Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra.

Vilja skapa sem víðtækasta sátt og festu

Markmið frumvarpsins er að skapa festu í uppfærslu launa kjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna og að skapa sem víðtækasta sátt um launafyrirkomulag þeirra.

Lögfesting varanlegs viðmiðs byggir á tillögum starfshóps sem forsætisráðherra skipaði á síðasta ári og miðast við breytingu á meðaltali reglulegra launa allra fullvinnandi ríkisstarfsmanna. Hagstofu Íslands verður falið að reikna og birta umrætt meðaltal og er lagt til að uppfærsla launa samkvæmt nýju viðmiði eigi sér stað tvisvar á ári.

Vegna nauðsynlegs undirbúnings mun nýtt viðmið ekki taka gildi fyrir uppfærslu launa 2026 og 2027. Því er lagt til að laun þjóðkjörinna fulltrúa og embættismanna hækki um 3,5% 1. júlí 2026 og 1. júlí 2027 í samræmi við kjarasamningsbundnar hækkanir sem samið hefur verið um á almennum og opinberum vinnumarkaði. Eins og fyrr segir hefðu laun þessa hóps að óbreyttu hækkað umtalsvert umfram aðra hópa 1. júlí nk. eða um 9,7%. Þá er lagt til að uppsöfnuð hækkun ársins 2028 verði að hámarki 3,5%.
Prime Minister's Office of Iceland published this content on April 22, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on April 22, 2026 at 17:20 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]