Government Offices of Iceland

10/22/2024 | Press release | Distributed by Public on 10/22/2024 12:53

Utanríkisráðherrar ræddu og áréttuðu mikilvægi vestnorræns samstarfs

Sameiginleg tækifæri og áskoranir í vestnorrænni samvinnu voru til umræðu á þríhliða fundi utanríkisráðherra Íslands, Færeyja og Grænlands, sem fram fór í Reykjavík síðastliðinn föstudag.

"Vestnorræn samvinna á sem flestum sviðum er Íslendingum afar mikilvæg. Við eigum sameiginlegan menningararf sem mikilvægt er að hlúa að og halda á lofti og á óvissutímum á alþjóðasviðinu er mikilvægara en nokkru sinni fyrr að styrkja tengslin við okkar næstu nágranna og vini," segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra.

Utanríkisráðherrar Íslands, Færeyja og Grænlands hittast á þríhliða fundi einu sinni á ári og styrkja þannig sambandið milli landanna þriggja. Á fundinum voru rædd málefni efst á baugi í vestnorrænu samstarfi um þessar mundir. Þá átti ráðherra sömuleiðis tvíhliða fund með Högna Hoydal, utanríkisráðherra Færeyja, þar sem viðskiptamál og framkvæmd fríverslunarsamnings Íslands og Færeyja voru efst á baugi.

Þórdís Kolbrún var einnig viðstödd undirritun samninga Icelandair við Atlantic Airways og Air Greenland sem fór fram á jaðri Hringborðs norðurslóða. Með samningunum geta flugfélögin boðið öflugar tengingar milli Grænlands og Færeyja annars vegar og Norður-Ameríku og Evrópu hins vegar, í einum flugmiðla í gegnum Ísland.

Government Offices of Iceland published this content on October 22, 2024, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on October 22, 2024 at 18:53 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]