08/24/2026 | Press release | Distributed by Public on 08/24/2026 04:57
24. ágúst 2026
Persónuvernd, Fjölmiðlanefnd, Fjarskiptastofa, Landskjörstjórn, Ríkislögreglustjóri og CERT-IS hvetja almenning til að vera á varðbergi gagnvart upplýsingum og efni sem tengist þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst.
Laugardaginn 29. ágúst fer fram þjóðaratkvæðagreiðsla um hvort Ísland eigi að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Í aðdraganda hennar mun mikið magn upplýsinga og efnis um málið berast almenningi, meðal annars í gegnum samfélagsmiðla og aðra stafræna miðla.
Í slíku upplýsingaflæði er mikilvægt að staldra við og meta upplýsingar áður en þeim er deilt eða þær lagðar til grundvallar afstöðu okkar. Sérstaklega þarf að hafa í huga að efni getur verið villandi, rangt eða vísvitandi sett fram með það að markmiði að hafa áhrif á skoðanir og ákvarðanir fólks. Þá getur gervigreind auðveldað framleiðslu og dreifingu á myndum, myndböndum og öðru efni sem erfitt getur verið að greina frá raunverulegum upplýsingum.
Persónuvernd vill jafnframt minna á að persónuupplýsingar geta gegnt mikilvægu hlutverki í þessu samhengi. Upplýsingar um okkur, svo sem nöfn, netföng, símanúmer, áhugamál og hegðun á netinu, geta verið notaðar til að beina ákveðnu efni að okkur og móta það sem við sjáum á samfélagsmiðlum. Því er mikilvægt að vera meðvituð um hvaðan upplýsingar koma, hver stendur að baki þeim og hvernig persónuupplýsingar okkar kunna að vera nýttar.
Markmiðið er ekki að segja fólki hvað það eigi að kjósa, heldur að stuðla að því að fólk geti tekið sjálfstæða og upplýsta afstöðu á grundvelli áreiðanlegra upplýsinga.
Af því tilefni hafa ofangreindir aðilar tekið saman tíu einföld atriði sem gott er að hafa í huga í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Þau má sjá á meðfylgjandi mynd og eru þau meðal annars áminning um að kynna sér málið frá fleiri en einum miðli, kanna heimildir, vera gagnrýnin á efni á samfélagsmiðlum, vera vakandi fyrir gervigreindarefni og huga að því hvernig persónuupplýsingar okkar geta verið notaðar.
Verum upplýst. Verum gagnrýnin. Og verum meðvituð um það efni sem við sjáum og deilum í aðdraganda kosninganna.