Government Offices of Iceland

06/29/2026 | Press release | Distributed by Public on 06/29/2026 11:16

Margrét Kristín skipuð lögreglustjóri á Suðurnesjum

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, hefur skipað Margréti Kristínu Pálsdóttur í embætti lögreglustjóra á Suðurnesjum. Hún tekur við embættinu á miðvikudag.

Margrét Kristín er lögfræðingur að mennt Frá árinu 2020 hefur hún gegnt fjölmörgum stjórnunarstörfum innan lögreglunnar, meðal annars sem settur aðstoðarríkislögreglustjóri, settur aðstoðarlögreglustjóri við embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum, yfirlögfræðingur og sviðsstjóri stjórnsýslu- og þjónustusviðs hjá embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu.

Hún var sett og síðar skipuð aðstoðarlögreglustjóri við embættið árið 2023 og var jafnframt staðgengill lögreglustjóra. Frá maí 2025 hefur hún verið settur lögreglustjóri á Suðurnesjum.

Margrét Kristín hefur víðtæka reynslu af stefnumótun, stjórnsýslu og þróun löggæslumála. Hún hefur setið í fjölmörgum starfs- og stýrihópum, tekið þátt í lagasetningarvinnu, meðal annars við endurskoðun lögreglunáms, og komið að mótun laga um menntun lögreglu. Þá hefur hún gegnt lykilhlutverki í Schengen-samstarfi Íslands, framkvæmd Schengen-úttekta og alþjóðlegu samstarfi á sviði landamæra-, lögreglu- og öryggismála.

Embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum var auglýst laust til umsóknar 23. september 2025 og sóttu sex um. Einn dró umsókn sína til baka.

Government Offices of Iceland published this content on June 29, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on June 29, 2026 at 17:16 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]