10/14/2026 | Press release | Distributed by Public on 10/14/2026 08:19
Þessi VPN-stilling lætur notandann virðast á öðrum aldri en hann er með því að treysta öryggisskírteini frá rekstraraðila þjónustunnar og beina netumferð símans í gegnum netþjóna hennar. Þjónustan breytir svo kennitölu ungmennisins sem birtist í netbanka og á island.is.
VPN-stillinguna var hægt að kaupa á netinu á bilinu 8. júlí til og með 8. október. Hún er ekki lengur fáanleg.
Ungmennin hafa þurft að slá inn raunverulega kennitölu sína og greiða fyrir þjónustuna á netinu í gegnum greiðslumiðlunina Stripe. Rekstraraðili þjónustunnar hefur því undir höndum raunverulega kennitölu þeirra, fullt nafn, netfang og í nokkrum tilfellum ljósmynd og aldur. Enn fremur er ljóst að þar sem sími ungmennanna treystir nú hinu falsaða skilríki gagnvart öllum vefsíðum getur rekstraraðilinn einnig skoðað umferð tengda tölvupósti, samfélagsmiðlum og öðrum skilaboðum án þess að þau verði þess vör.
Landsbankinn hvetur foreldra og forráðamenn ungmenna til að kanna málið sérstaklega. Ef VPN-stillingin finnst í síma ungmennis er brýnt að bregðast við með eftirfarandi hætti:
Við hvetjum ykkur til að hafa samband við lögreglu í síma 444-1000 ef þið hafið frekari upplýsingar um málið.