Síminn hf.

03/17/2026 | Press release | Distributed by Public on 03/17/2026 04:56

Svikapóstar í aukningu – viðskiptavinir hvattir til að sýna aðgát

Til baka í fréttayfirlit

Svikapóstar í aukningu - viðskiptavinir hvattir til að sýna aðgát

17. mars 2026

Síðasta sólarhring hefur Síminn orðið fyrir netárás sem felur í sér svikapósta sem eru sendir til fjölda viðskiptavina á sama tíma. Í

Síðasta sólarhring hefur Síminn orðið fyrir netárás sem felur í sér svikapósta sem eru sendir til fjölda viðskiptavina á sama tíma. Í tölvupóstunum eru viðskiptavinir hvattir til að smella á óþekkta hlekki og hnappa.

Dæmi um tölvupósta sem eru sendir á viðskiptavini eru: "Viðvörun: Ódulkóðuð nettenging - Smelltu hér til að virkja örugga dulkóðun." Þegar smellt er á hnappinn er notandinn leiddur á svikasíðu. Viðskiptavinum Símans er ráðlagt að ýta ekki á slíka hlekki eða hnappa.

Netárásin herjar á einstaklinga með Símnet netföng. Síminn vinnur að því í samstarfi við CERT-IS að loka léninu. Einnig er unnið að því að loka á móttöku þessara tölvupósta með Sensa.

Síminn bendir á að:

  • Smella ekki á hlekki í grunsamlegum tölvupóstum
  • Athuga alltaf sendanda vandlega
  • Gefa aldrei upp lykilorð eða persónuupplýsingar í gegnum tölvupóst


Ef þú ert í vafa, mælum við með að eyða póstinum eða hafa samband við þjónustuver Símans.

Síminn hf. published this content on March 17, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on March 17, 2026 at 10:56 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]