03/20/2026 | Press release | Distributed by Public on 03/20/2026 05:46
Dómsmálaráðherra hefur ákveðið að flytja Rögnu Bjarnadóttur, skrifstofustjóra í dómsmálaráðuneytinu, í embætti forstjóra Fangelsismálastofnunar ríkisins frá og með 15. maí næstkomandi, með vísan til heimildar í 1. mgr. 36. gr. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Ragna hefur gegnt embætti skrifstofustjóra í dómsmálaráðuneytinu frá árinu 2017. Til ársins 2025 stýrði hún skrifstofu almanna- og réttaröryggis sem fór með umfangsmikla málaflokka á sviði réttarvörslu, svo sem fullnustu refsinga, löggæslu, ákæruvald, aðgerðir gegn brotastarfsemi sem og almannavarnir, landhelgisgæslu, landamæri o.fl. Frá árinu 2025 til dagsins í dag hefur hún stýrt skrifstofu alþjóðamála sem ber einkum ábyrgð á útlendingamálum, landamærum og aðgerðum gegn brotastarfsemi. Í störfum sínum sem skrifstofustjóri hefur Ragna leitt vinnu við lagasetningu og stefnumótun á málefnasviðunum, stýrt fjölda hópa og nefnda og sinnt fjölbreyttu alþjóðasamstarfi svo dæmi séu tekin. Hún býr því yfir umfangsmikilli reynslu og þekkingu á þeim verkefnum sem Fangelsismálastofnun ber ábyrgð á.
Ragna er fædd árið 1975. Hún lauk cand.jur. prófi frá Háskóla Íslands árið 2006 og meistaragráðu með áherslu á réttarheimspeki og mannréttindi á sviði sakamála frá Oxford háskóla árið 2009. Hún starfaði sem ákærandi á árunum 2006 til 2008 og 2009 til 2010, fyrst hjá embætti ríkissaksóknara og svo hjá embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Á árunum 2011 til 2014 starfaði hún sem lögfræðingur hjá Mannréttindadómstól Evrópu í Strassborg. Þá starfaði hún sem lögfræðingur hjá umboðsmanni Alþingis frá árinu 2015 til 2016. Það ár hóf Ragna störf í dómsmálaráðuneytinu, þá innanríkisráðuneytinu, og starfaði sem lögfræðingur ráðuneytisins í mannréttindum til ársins 2017 þegar hún tók við skipun sem skrifstofustjóri eins og áður greinir.