Government Offices of Iceland

04/23/2026 | Press release | Distributed by Public on 04/23/2026 03:19

Fundað um framtíð íslenskunnar í höfuðstöðvum Apple

Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra fundaði með fulltrúum tæknifyrirtækisins Apple í höfuðstöðvum fyrirtækisins í Battersea í London á mánudaginn. Ásamt ráðherra sóttu fundinn fulltrúar frá Almannarómi - miðstöð máltækni á Íslandi.

Erindi fundarins var að óska eftir því að íslenska verði hluti af iOS stýrikerfi Apple en engin tæki frá framleiðandanum eru fáanleg með íslensku notendaviðmóti. Í árlegri neyslu- og lífstílskönnun Gallup kemur fram að iPhone er sú tegund farsíma sem flestir Íslendingar kjósa og fer prósentan upp í 74% á aldrinum 18 - 34 ára.

"Það er sérstakt áhyggjuefni að Apple tækin bjóði ekki upp á íslensku ólíkt tækjum sem nota Android stýrikerfi. Fyrir Íslendinga snýst þetta um jafnt aðgengi og raunhæfa þátttöku í nútímatækni og að tryggja að við getum notað tungumálið okkar í hinum stafræna heimi. Markmið okkar er að skilgreina hvar hagsmunir Íslands og Apple fara saman og gera grein fyrir þeirri máltæknivinnu sem nú þegar hefur átt sér stað og hægt er að byggja á," segir Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðráðherra.

Máltækniáætlanir stjórnvalda hafa skilað sér með margvíslegum hætti, svo sem í íslenskumælandi mállíkönum á borð við ChatGPT. Microsoft og Google hafa einnig nýtt gögn úr máltækniáætlun stjórnvalda til að gera flestar lausnir sínar nothæfar á íslensku. Eftir situr tæknirisinn Apple sem erfitt hefur reynst að nálgast en þetta er fyrsti fundur stjórnvalda með fyrirtækinu síðan 2022. Frá því sá fundur átti sér stað, hefur Ísland markað sér sess sem forysturíki þegar kemur að máltækni og vinnu við að gera tungumál sem fáir tala, nothæft í helstu tæknilausnum heims.

Sameiginlegir vinir Apple og Íslands


Íslensk tónlist, bókmenntir og sjónvarpsefni bera hróður íslenskrar menningar víða. Fjölbreytt íslenskt efni er aðgengilegt á streymisveitum Apple og fjölmargir íslenskir listamenn hafa átt í beinu samstarfi við fyrirtækið.

Sem dæmi má nefna að leikararnir Ólafur Darri Ólafsson og Hera Hilmarsdóttir hafa leikið í framleiðslum fyrir Apple TV+. Þá hlaut tónskáldið Atli Örvarsson BAFTA-verðlaun og Emmy tilnefningu fyrir tónlist sem hann samdi fyrir sjónvarpsþætti framleidda af Apple. Tónskáldið Ólafur Arnalds hefur einnig hlotið Emmy-tilnefningu fyrir tónlist sína í þáttum frá Apple. Björk hefur einnig unnið ýmis lista- og tækniverkefni í samstarfi við fyrirtækið. Þá heyrðist tónlist hljómsveitarinnar Inspector Spacetime nýverið í auglýsingu fyrir iPhone 17 Pro.

"Íslensk menning er einstök og gerir sig gildandi hvar sem er í heiminum. Við erum ekki mörg en við erum fær í mörgu. Það kom upp sú hugmynd að enda fundinn á að bera Apple kveðju frá sameiginlegum vinum Apple og íslenskunnar með stuttu myndbandi. Að íslenskum sið var hóað í sameiginlega vini án fyrirvara og þeir beðnir að senda kveðju sem tókst svona glimrandi vel og vakti mikla lukku viðstaddra. Það er einstök fegurð fólgin í því að þegar það kemur að tungumálinu okkar erum við sammála um að hlúa að þessari gersemi svo hún vaxi og dafni með okkur um ókomna tíð."

Afhentu áskorun frá ÖBÍ


Öryrkjabandalagið, samtök 23 hagsmunafélaga fólks með fötlun, hefur vakið athygli á að tæki frá Apple séu almennt ákjósanlegust fyrir fólk með fötlun og nefnir sem dæmi að iPad feli í sér byltingu í þjálfun og endurhæfingu, en þar sem viðmótið, raddgreiningin og talgerving styðji ekki íslensku sé mjög takmarkað hvaða forrit og lausnir sé hægt að nýta. Það takmarki aðgengi barna að tal-, sjón- og þroskaþjálfun og aðgengi t.d. fullorðinna heilabilaðra einstaklinga á endurhæfingu. Auk þess býður iPad upp á margskonar tjáskiptalausnir fyrir athafnir daglegs lífs - ef tækið skildi íslensku.

Ráðherra afhenti fulltrúum Apple áskorun fyrir hönd ÖBÍ þar sem fyrirtækið er hvatt til þess að innleiða íslensku og standa þannig vörð um eitt af kjarnagildum sínum sem er aðgengi.

"Fyrir fólk með fötlun er skortur á íslensku í Apple tækjum ekki smávægilegt tæknimál heldur spurning um sjálfstæði og mannréttindi. Eitt af kjarnagildum Apple er aðgengi fyrir alla og fyrirtækið stendur hvað fremst hvað aðgengismál í símum og spjaldtölvum varðar svo að það er einlæg von mín að þessi áskorun fái verðskuldaða athygli. "

Ráðherra segir fulla ástæðu til gleðjast yfir því að fyrsta skrefið hafi verið stigið þó Apple hafi ekki orðið við ósk Íslands þar og þá, enda sé um langhlaup að ræða. Fulltrúar fyrirtækisins hafi sýnt erindinu einlægan áhuga en næstu skref séu að veita aðgengi að opnum máltæknigögnum og skilgreina hvaða áskoranir eru til staðar.

Fundað með fulltrúum Google um raddstýringu

Almannarómur fundaði einnig með aðilum úr aðgengisteymi Google í Lundúnum um raddstýringu á íslensku. Með innleiðingu raddstýringar í Google-umhverfið gætu notendur meðal annars talað við tölvupóst sinn og dagatal sem myndi auka aðgengi og sjálfstæði fólks með fötlun.

Lilja Dögg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Almannaróms afhenti á fundinum áskorun fyrir hönd Öryrkjabandalag Íslands þar sem skorað var á fyrirtækið að bæta raddlausnir sínar á íslensku fyrir íslenska notendur þeirra.

Hún segir áskoruninni hafa verið vel tekið og Google hafi reynst góður samstarfsaðili Íslands í máltækni en það þurfi sífellt að halda áherslum á lofti og minna á sig til þess að sitja ekki eftir í þeim hraða sem tæknin vinnur á.

"Við áttum góðan fund með Google sem almennt stendur einna best þegar kemur að stuðningi við íslenska tungu og er hægt að nota flestar lausnir fyrirtækisins á íslensku. Það eru þó enn lausnir á þeirra vegum sem eru ekki aðgengilegar á íslensku. Á þessum fundi lögðum við áherslu á raddstýringu í þjónustum á borð við Google Assistant og Google Voice Access. Það væri sérstaklega mikil bylting fyrir samfélag fatlaðs fólks á Íslandi ef tekst að ná árangri á þessu sviði, " segir Lilja Dögg Jónsdóttir framkvæmdastjóri Almannaróms.

Government Offices of Iceland published this content on April 23, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on April 23, 2026 at 09:19 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]