Government Offices of Iceland

05/27/2026 | Press release | Distributed by Public on 05/27/2026 06:21

Kolbeinn Árnason nýr ráðuneytisstjóri atvinnuvegaráðuneytis

Samkomulag hefur orðið á milli atvinnuvegaráðherra Hönnu Katrínar Friðriksson og Bryndísar Hlöðversdóttur ráðuneytisstjóra um að Bryndís flytjist í starf sérfræðings í ráðuneytinu frá og með 1. júní næstkomandi. Bryndís hefur sjálf óskað eftir flutningi og er hann gerður á grundvelli 2. mgr. 36. gr. starfsmannalaga nr. 70/1996. Ráðherra hefur jafnframt ákveðið að Kolbeinn Árnason skrifstofustjóri á skrifstofu auðlinda flytjist í starf ráðuneytisstjóra frá sama tíma, sbr. 1. mgr. 36. gr. sömu laga.

Kolbeinn er með embættispróf í lögfræði frá Háskóla Íslands og AMP gráðu frá IESE Business School í Barcelona. Á árum áður gegndi Kolbeinn starfi skrifstofustjóra alþjóðaskrifstofu sjávarútvegsráðuneytisins, hann var fulltrúi sjávarútvegsráðuneytisins hjá fastanefnd Íslands við Evrópusambandið í Brussel og skrifstofustjóri á skrifstofu fiskveiðistjórnunar í sjávarútvegsráðuneytinu.

Þá var Kolbeinn yfirlögfræðingur og framkvæmdastjóri lögfræðideildar skilanefndar og slitastjórnar Kaupþings og framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Kolbeinn starfaði jafnframt sem lögmaður og sat í stjórnum ýmissa fyrirtækja.

Árið 2020 var Kolbeinn skipaður skrifstofustjóri á skrifstofu matvæla í matvælaráðuneytinu og tók við nýrri skrifstofu auðlinda í atvinnuvegaráðuneytinu árið 2025. Kolbeinn hefur verið staðgengill ráðuneytisstjóra frá 2021.


Government Offices of Iceland published this content on May 27, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on May 27, 2026 at 12:22 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]