06/06/2026 | Press release | Distributed by Public on 06/06/2026 03:26
Í byrjun vikunnar tóku utanríkisráðuneytið og Landhelgisgæsla Íslands á móti fulltrúum frá innkaupastofnun Atlantshafsbandalagsins (NSPA). Heimsóknin var með tvíþættan tilgang. Í fyrsta lagi að kynna starfsemi innkaupastofnunarinnar fyrir íslenskum fyrirtækjum sem hafa áhuga á að eiga viðskipti við Atlantshafsbandalagið eða bandalagsríki. Utanríkisráðuneytið og Landhelgisgæslan héldu í samráði við Íslandsstofu og Samtök iðnaðarins fjölmennan kynningarfund þess efnis á aðalskrifstofu ráðuneytisins en einnig var farið í fyrirtækjaheimsóknir til fyrirtækja sem bjóða upp á tækni með tvíþætt notagildi. Í öðru lagi var tilgangur heimsóknarinnar að kynna stofnunina fyrir áhugasömum sérfræðingum en stofnunin stefnir að því bæta töluvert í ráðningar á næstu misserum. Utanríkisráðuneytið og Landhelgisgæslan héldu, með það að augnamiði, annan kynningarfund í Hörpu fyrir áhugasama sérfræðinga þar sem fulltrúar innkaupastofnunar Atlantshafsbandalagsins fóru yfir starfsumhverfið, umsóknarferlið o.fl.
Við höfum lagt áherslu á að auka vitund á tækifærum fyrir íslensk fyrirtæki á þessu sviði í samræmi við stefnu í varnar- og öryggismálum. Það skiptir máli að nýta þekkingu og sköpunarkraft íslenskra fyrirtækja til að efla öryggi okkar og annarra ríkja, segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra.
Innkaupastofnun Atlantshafsbandalagsins veitir fjölbreytta þjónustu á sviði stuðnings og innkaupa fyrir stofnanir Atlantshafsbandalagsins og aðildarríkja þess t.a.m á sviði flutninga, birgðastjórnunar, viðhalds búnaðar, loft- og sjóflutninga, eldsneytisreksturs, flugreksturs og stoðþjónustu við alþjóðleg verkefni og æfingar. Innkaupastofnunin er með höfuðstöðvar í Capellen, Lúxemborg, og rekur fjölda útibúa í aðildarríkjum Atlantshafsbandalagsins.