03/07/2026 | Press release | Distributed by Public on 03/07/2026 04:26
Tæplega 120 Íslendingar sem voru á áhrifasvæðum stríðsátaka í Mið-Austurlöndum hafa yfirgefið svæðið, eiga bókað flug eða ætla sér ekki að yfirgefa svæðið. Mál 47 einstaklinga af þeim sem óskuðu eftir aðstoð við að komast í burtu frá eru enn í vinnslu.
Viðbragðsteymi borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins vegna ástandsins í Mið-Austurlöndum sendi fyrir hádegi á fimmtudag út tölvupóst þar sem fólk á svæðinu var beðið um að láta vita hvort það þyrfti á aðstoð að halda eða ekki. Í gærmorgun áttu 150 aðilar eftir að svara og var því ráðist í að hringja í allan hópinn til að ná sem skýrastri mynd af raunverulegri þörf. Ekki hefur náðst í 26 manns og eru viðkomandi eindregið hvött til að láta vita af sér sem allra fyrst.
Tilkynningar um björgunarflug berast borgaraþjónustunni nú jafnt og þétt og eru upplýsingar um þau send á viðeigandi aðila eftir staðsetningu. Aðallega er um að ræða flug frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum, Óman og Sádi Arabíu en lofthelgi annarra ríkja á svæðinu er enn að mestu lokuð. Þá eru einnig almenn farþegaflug í boði frá Múskat í Óman og Riyadh í Sádi Arabíu.