Government Offices of Iceland

05/28/2026 | Press release | Distributed by Public on 05/28/2026 10:53

Utanríkisráðherra fundaði með framkvæmdastjóra UNICEF

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra átti í gær fund með Catherine Russel, framkvæmdastjóra Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF).

UNICEF er ein af fjórum áherslustofnunum Íslands í fjölþjóðlegri þróunarsamvinnu og á fundinum var gjöfult samstarf Íslands og stofnunarinnar til umræðu, en sömuleiðis bág staða fjölda barna í heiminum vegna átaka og hamfara samhliða lækkun framlaga til þróunarsamvinnu á heimsvísu.

"Samstarf Íslands við þessa mikilvægu stofnun Sameinuðu þjóðanna er okkur gríðarlega dýrmætt, og því var sérlega ánægjulegt að taka á móti Catherine hér í Reykjavík. Alltof mörg börn búa við hörmulegar aðstæður og okkur ber hreinlega skylda til að reyna hvað við getum til að lina þjáningar þeirra og veita skjól," segir Þorgerður Katrín. "Þá er auðvitað sérstakt ánægjuefni hvað verkefni okkar í samstarfi við UNICEF hafa skilað góðum árangri og skipt sköpum."

Íslensk stjórnvöld leggja áherslu á að veita kjarnaframlög til stofnununnarinnar sem gerir henni kleift að sinna fjölmörgum verkefnum sem ætlað er að efla réttindi barna, veita neyðaraðstoð og bæta lífsgæði og aðgang að þjónustu. Einnig styðja íslensk stjórnvöld við Jafnréttissjóð UNICEF og sameiginlegan sjóð UNICEF og UNFPA um afnám kynfæralimlestinga. Auk þess eiga íslensk stjórnvöld í góðu samstarfi við UNICEF í öllum tvíhliða samstarfsríkjum Íslands, þ.e. Malaví, Úganda og Síerra Leóne.

Samstarfsverkefnin eru fyrst og fremst á sviði vatns- og hreinlætismála og menntamála. Þá veita íslensk stjórnvöld stuðning við verkefni UNICEF um Barnahús í Úkraínu, sem byggist á íslenskri fyrirmynd. Ísland á sæti í framkvæmdastjórn UNICEF 2026-2028 og gegnir í ár embætti varaforseta í stjórnarnefnd framkvæmdastjórnarinnar fyrir hönd Vesturlandahópsins.

Russell heimsótti Ísland í tengslum við ársfund landsnefnda UNICEF sem fór fram í Reykjavík að þessu sinni. Landsnefndir eru starfandi í 32 ríkjum og gegna mikilvægu hlutverki í stuðningi við starfsemi UNICEF með fjáröflun og vitundarvakningu um réttindi barna. Um fjórðungur af reglulegu fjármagni UNICEF kemur frá landsnefndum sem einnig sinna þýðingarmiklu fræðslustarfi innanlands.

Utanríkisráðuneytið styður kynningar- og fræðslustarf íslensku landsnefndarinnar um þróunarsamvinnu í gegnum rammasamning sem nýlega var endurnýjaður. Dæmi um önnur verkefni íslensku landsnefndarinnar eru réttindaskólar og -frístund UNICEF þar sem lögð er áhersla á barnaréttindafræðslu fyrir börn og fullorðna, og að börn séu virkir þátttakendur í lýðræðislegu samfélagi. Framkvæmdastjórinn heimsótti einmitt réttindaskólann Vesturbæjarskóla og fékk þar kynningu á starfinu frá skólastjóra og börnum í réttindaráði skólans.

Government Offices of Iceland published this content on May 28, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on May 28, 2026 at 16:53 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]