02/20/2026 | Press release | Distributed by Public on 02/20/2026 06:25
Birt hafa verið til umsagnar í samráðsgátt drög að tillögu heilbrigðisráðherra um einstaklingssniðna heilbrigðisþjónustu. Þingsályktunartillagan er unnin upp úr skýrslu starfshóps sem falið var að vinna drög að stefnu um einstaklingssniðna heilbrigðisþjónustu og skilaði ráðherra skýrslu í júlí 2025.
Hugtakið einstaklingssniðin heilbrigðisþjónusta (EHÞ) felur í sér forvarnir og lækningar sem eru sniðnar sérstaklega að hverjum einstaklingi eftir því sem kostur er, m.a. á grunni erfðafræði, lífvísa og klínískra upplýsinga - ólíkt því þegar allir með tiltekinn sjúkdóm fá sömu meðferð. Markmiðið er að velja besta meðferðarkostinn á hverjum tíma, forðast ónauðsynlegar meðferðir og draga úr aukaverkunum.
Í meðfylgjandi drögum að þingsályktun eru tilgreindar þær aðgerðir sem ráðast þarf í svo hægt verði að byggja upp einstaklingssniðna heilbrigðisþjónustu til framtíðar. Viðfangsefnin eru margvísleg og flókin. Þau lúta meðal annars að samþættingu gagnagrunna, öruggri miðlun upplýsinga, uppbyggingu innviða og markvissri fræðslu fyrir heilbrigðisstarfsfólk og almenning.