07/01/2026 | Press release | Distributed by Public on 07/01/2026 04:52
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra kynnti sér uppbyggingarverkefni á Reykjanesskaga og í Vestmannaeyjum dagana 25. og 26. júní. Verkefnin eiga það sameiginlegt að endurspegla atvinnustefnu Íslands og vonir eru bundnar við að þau skili miklum verðmætum í þjóðarbúið á næstu árum.
"Það er magnað að sjá frá fyrstu hendi þann þrótt sem er í fjárfestingum og uppbyggingu á Suðurnesjum og í Eyjum. Landeldisfyrirtæki og gagnaver hafa verið í fararbroddi aukningar útflutningstekna undanfarin misseri. Það er mikilvægt fyrir mig að hitta forsvarsfólk þessara kröftugu fyrirtækja og auka skilning okkar á þeirra áskorunum og tækifærum til verðmætasköpunar. Þetta eru skýr dæmi um atvinnugreinar sem gætu vaxið á næstu árum og ný atvinnustefna Íslands lítur sérstaklega til. Við munum fylgjast spennt með þróun þeirra," segir Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra.
Í gagnaveri Verne er undirbúningur hafinn undir mikla stækkun versins.
Verne Global er frumkvöðull í rekstri gagnavera á Íslandi. Í heimsókn til fyrirtækisins á Ásbrú skoðaði forsætisráðherra meðal annars nýtt spennuvirki sem fyrirtækið tók í notkun í síðasta mánuði. Það gefur fyrirtækinu möguleika á að taka á móti meiri orku en nú er í undirbúningi veruleg stækkun starfseminnar sem drifin er meðal annars áfram af þróun og eftirspurn í gervigreindariðnaði.
Kadeco kynnti nýja þróunaráætlun fyrir flugvallarsvæðið og í kynningarferð um Ásbrú sýndi forsvarsfólk félagsins uppbyggingarreiti fyrir bæði atvinnu- og íbúðarhúsnæði áður en haldið var í grænan iðngarð í Helguvík/Bergvík. Þar sem áður voru áform um rekstur álvers liggja nú fyrir mjög metnaðarfullar áætlanir um rekstur hátækni-fyrirtækja sem og margs konar græns iðnaðar. Nú þegar hafa japanskir frumkvöðlar hafið hátækniræktun á hágæða jarðaberjum í iðngarðinum.
Forsætisráðherra með fulltrúum Verne. F.v.: Helgi Helgason, Dominic Ward, Kristrún Frostadóttir, Styrmir Hafliðason, Wayne Louw og Alexander Picchietti.
Í Eldisgarði Samherja við Reykjanesvirkjun er stefnt að því að nýta jarðsjó og ylsjó, sem er affall frá kælingu virkjunarinnar sem áður hefur runnið til sjávar. Þar verður lax alinn á landi í tæknilega fullkominni eldisstöð. Forsætisráðherra skoðaði framkvæmdirnar sem hófust haustið 2024 og stefnt er að því að taka fyrsta áfanga af þremur í notkun fyrri hluta næsta árs.
Forsætisráðherra ásamt Kjartani Eiríkssyni, forsvarsmanni græns iðngarðs í Helguvík, og Pálma Frey Randverssyni, framkvæmdastjóra Kadeco.
Í Vestmannaeyjum hefur verið mikill gangur í vexti Laxeyjar sem rekur eina fullkomnustu seiðaeldisstöð landsins í Friðarhöfn. Að lokinni skoðunarferð um stöðina var farið í Viðlagafjöru þar sem framkvæmdir við landeldisstöð félagsins hófust í ársbyrjun 2023. Þar er nú alinn lax og árleg framleiðsla er um 5000 tonn. Í síðustu viku lauk Laxey 6,7 milljarða hlutafjárútboði og frágangi sambankaláns hjá erlendum og innlendum lánastofnunum. Mun þessi fjármögnun tryggja framleiðslugetu fyrir 17 þúsund tonnum af slægðum laxi á ári.
Auk heimsóknar í Laxey hitti forsætisráðherra fulltrúa Eyjaganga og kynnti sér stöðu tilraunaborana fyrir jarðgöngum á milli lands og Eyja. Einnig kynntu Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri, fulltrúar í bæjarstjórn og hafnarstjóri áætlanir um byggingu viðlegukants norðan megin við Eiði sem munu stórbæta aðstöðu til móttöku stórskipa í Eyjum.
Japanskir frumkvöðlar standa fyrir hátækniræktun á jarðarberjum í kjallara á lóð græna iðngarðsins.