The President of Iceland

11/14/2024 | Press release | Archived content

Leiðarvísir Vertonet

Fréttir | 14. nóv. 2024

Leiðarvísir Vertonet

Forseti tekur þátt í setningu átaksverkefnis um að fjölga konum og kvárum í upplýsingatæknnigeiranum. Að átakinu standa Vertonet, samtök kvenna og kvára í upplýsingatækni á Íslandi. Hlutfall kvenna og kvára í upplýsingatækni er um 28% hér á landi, en mikil vöntun er á sérfræðingum í geiranum.

Markmið átaksverkefnisins er að smíða ókeypis leiðarvísi, Vertonet Playbook, sem verði verkfærakista til að auðvelda fyrirtækjum og stjórnendum að stuðla að inngildandi vinnustaðamenningu sem verði til þess að fleiri konur og kvár kjósi sér upplýsingatækni sem starfsvettvang.

Átakinu var ýtt úr vör með rafrænum fundi mannauðsfólks og fólks í tæknigeiranum þar sem öll fengu tækifæri til að leggja sitt af mörkum við smíði leiðarvísins. Forseti tók þátt í setningu viðburðarins með opnu samtali við driffjöður verkefnisins, Ásdísi Eir Símonardóttur, mannauðs- og stjórnendaráðgjafa. Rætt var um áherslur forseta á jafnréttismál, eiginleika góðra leiðtoga og framtíð leiðtogahlutverka, gildi fjölbreytileika á vinnustöðum og reynslu forseta af aðferðum við inngildingu á alþjóðlegum vinnumarkaði.

Að loknu samtalinu við forseta tóku ýmsir sérfræðingar til máls og verður áfram unnið úr afsrakstri fundarins við gerð leiðarvísis Vertonets á næstu vikum.

Deila
The President of Iceland published this content on November 14, 2024, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on November 19, 2024 at 15:32 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]