08/27/2026 | Press release | Distributed by Public on 08/27/2026 11:08
27. ágúst 2026
Vegna ábendinga sem Persónuvernd hafa borist um óumbeðin fjarskipti vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar næstkomandi laugardag, þar á meðal um símhringingar, SMS og tölvupósta til einstaklinga, telur stofnunin rétt að vekja athygli stjórnmálahreyfinga, hagsmunasamtaka og annarra á eftirfarandi:
Við notkun persónuupplýsinga í markaðssetningu, þar á meðal á samfélagsmiðlum, þurfa hagsmunaaðilar að tryggja að vinnslan samrýmist persónuverndarlögum. Gæta þarf þess að heimilt sé að nota persónuupplýsingar, t.d. nöfn, símanúmer, heimilisföng og netföng í markaðssetningu, og að upplýst sé hvaðan þau koma og að veittur sé kostur á andmælum. Ekki er mælt með notkun "Eigin markhópa" (e. custom audiences) eða "Líkindamarkhópa" (e. lookalike audiences) til að beina auglýsingum að tilteknum einstaklingum á Facebook.
Þá bendir Persónuvernd á að við notkun gervigreindar þarf að gæta fræðsluskyldu og gagnsæis. Merkja skal skýrt ef myndir eða myndskeið eru gervigreindargögn, forðast djúpfalsað efni sem getur blekkt kjósendur og staðreyna upplýsingar áður en þær eru birtar.