03/02/2026 | Press release | Distributed by Public on 03/02/2026 09:50
Loftslagsmál, nýting endurnýjanlegrar orku og vernd ferskvatns voru meðal umræðuefna á fundi Jóhanns Páls Jóhannssonar umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra með sendinefnd kanadískra þingmanna í dag. Fyrir sendinefndinni fer Francis Scarpaleggia, forseti fulltrúadeildar kanadíska þingsins, en sendinefndin er m.a. að kynna sér umhverfisvernd og nýtingu náttúruauðlinda hér á landi.
Þingmennirnir hafa kynnt sér nýtingu jarðhita í heimsókn sinni og spurðu m.a. um tilraunaverkefni um nýtingu á ofurheitum jarðvarma. Einnig vildu þingmennirnir vita um nýtingu vindorku, samspil orkunýtingar og náttúruverndar og vernd ferskvatns, en Ísland og Kanada eiga það sameiginlegt að vera í efstu sætum á lista yfir ríki heims hvað varðar gnægð ferskvatns á hvern íbúa.
Jóhann Páll lagði áherslu á að lýðræðisríki með líkar skoðanir á sviði umhverfisverndar og annarra mála, eins og Kanada og Ísland, hefðu með sér samvinnu á alþjóðasviðinu. Nefnt var í því samhengi að Heimsþing Alþjóða jarðhitasambandsins verður haldið í Calgary í Kanada í júní 2026, en það er stærsti viðburður um málefni jarðhita á alþjóðavísu og er fyrirhugað að sendinefnd frá Íslandi sæki þingið.
Frá vinstri: Þingmennirnir Steeve Lavoie og Alexis Brunelle-Duceppe, Francis Scarpaleggia, forseti fulltrúadeildar kanadíska þingsins, Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Blaine Calkins þingmaður og Jenny Hill, sendiherra Kanada á Íslandi.