05/19/2026 | Press release | Distributed by Public on 05/19/2026 09:26
Öll 32 bandalagsríki Atlantshafsbandalagsins tóku nýverið þátt í æfingunni STEADFAST DETERRENCE 2026 sem fram fór í stjórnstöðvum bandalagsins víðsvegar í Evrópu og Norður-Ameríku. Æfingin, sem nú var haldin í þriðja skiptið, var skipulögð af varnaræfingasetri bandalagsins, Joint Warfare Centre (JWC) í Stafangri, en um átta þúsund manns tóku þátt í æfingunni að þessu sinni.
STEADFAST DETERRENCE er ein af lykilæfingum Atlantshafsbandalagsins við að virkja varnaráætlanir bandalagsins. Þar er viðbragðsgeta bandalagsins æfð á breiðum grunni, þ.e. hernaðaraðgerðir, upplýsingamiðlun og viðbrögð við fjölþáttaógnum á borð við upplýsingaóreiðu.
"Það er gríðarlega mikilvægt að við látum ekki okkar eftir liggja og tökum virkan þátt í æfingu sem þessari, enda er þátttaka okkar mikilvægur liður í öflugu samstarfi okkar við Atlantshafsbandalagið og eflir um leið sameiginlegar varnir og öryggi bandalagsins á Norður-Atlantshafi," segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.
Að þessu sinni náði æfingin til allra herstjórna Atlantshafsbandalagsins, þar á meðal nýjustu herstjórnar bandalagsins í Norfolk, en nú heyra öll Norðurlöndin undir hana. Öflugt Norðurlandasamstarf var því veigamikill hluti af þátttöku Íslands í æfingunni.
Þannig tóku sérfræðingar á vegum varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins í Stafangri og æðstu herstjórn Atlantshafsbandalagsins (SHAPE) í Mons í Belgíu, virkan þátt í æfingunni í samráði við sérfræðinga Landhelgisgæslu Íslands, ríkislögreglustjóra og netöryggisveit íslenskra stjórnvalda (CERT-IS). Þar að auki tóki fimm Íslendingar sem starfa í herstjórnum bandalagsins sömuleiðis þátt í æfingunni.