Government Offices of Iceland

05/28/2026 | Press release | Distributed by Public on 05/28/2026 07:27

Ungt fólk ræðir framtíð varnar- og öryggismála á málþingi í Norræna húsinu

Miðvikudaginn 4. júní nk. stendur YATA Ísland, félag ungs fólks um öryggis- og varnarmál, í samstarfi við varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, fyrir málþingi í Norræna húsinu undir yfirskriftinni Nordic Futures Dialogue 2055. Málþingið stendur frá kl. 9:30-13:00 og mun leiða saman ungt fólk, sérfræðinga og fulltrúa stjórnvalda til umræðu um framtíðarþróun varnar- og öryggismála á Norðurlöndum.

Málþingið er ætlað ungu fólki á aldrinum 18-35 ára sem hefur áhuga á varnar- og öryggismálum. Skráning fer fram og stendur til lok mánudags 2. júní.

Markmið málþingsins er að skapa vettvang fyrir ungt fólk til að koma sjónarmiðum sínum og hugmyndum á framfæri um þróun öryggismála á Norðurlöndum, með sérstakri áherslu á framtíðarsýn, áhættumat og áfallaþol samfélaga gagnvart nýjum og breyttum áskorunum.

Á dagskrá verða pallborðsumræður um þróun og framtíð varnar- og öryggismála frá sjónarhóli ungs fólks, auk vinnustofu þar sem þátttakendur munu meðal annars ræða nýjar öryggisógnir, framtíð varnarsamstarfs á Norðurlöndum og leiðir til að efla samfélagslegt áfallaþol og viðbúnað til framtíðar.

Málþingið fer fram sem hluti af samstarfi innan norræns samstarfsvettvangs stjórnvalda á sviði stefnumótandi framtíðarsýnar og langtímagreininga í varnar- og öryggismálum. Markmið samstarfsins er að efla sameiginlega stöðuvitund Norðurlandanna gagnvart breyttu öryggisumhverfi og stuðla að langtímasýn í stefnumótun á sviði varnar- og öryggismála.

Með málþinginu er leitast við að efla þátttöku ungs fólks í stefnumótandi umræðu um varnar- og öryggismál og stuðla að því að sjónarmið komandi kynslóða fái aukið vægi í stefnumótun og framtíðarsýn.

Dagskrá:

09:30-09:40 Opnun málþings

09:40-09:50 Erindi: What do we mean by Strategic Shocks and Foresight?

09:50-10:30 Pallborðsumræður: Perspectives on Future Risks to Nordic Security and Defense

10:30-11:45 Hópvinna
Borð 1: Loftslagsbreytingar, alþjóðleg valdabarátta, umbreytingar í efnahag
Borð 2: Ójafnrétti, lýðfræðilegar þvinganir, tæknilegar framfarir
Borð 3: Ein í Norðrinu: Alþjóðleg valdabarátta, ójafnrétti og óvissa stjórnhátta
Borð 4: Hrun AMOC kerfisins, orkusjálfstæði og breytt loftslag
Borð 5: Að vera viðbúin krísu, norræn samstaða, viðbúnaður almennings
Borð 6: Tæknilegar framfarir, alþjóðleg samkeppni, stjórnhættir

11:45-12:15 Endurgjöf og umræður

12:15-12:30 Lokaorð

Government Offices of Iceland published this content on May 28, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on May 28, 2026 at 13:27 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]