03/04/2026 | Press release | Distributed by Public on 03/04/2026 13:18
Samstarf á vettvangi Atlantshafsbandalagsins, áframhaldandi stuðningur við varnarbaráttu Úkraínu og staða mála í Mið-Austurlöndum voru efst á baugi á óformlegum utanríkisráðherrafundi Eystrasaltsráðsins sem fram fór í Varsjá í dag. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra tók þátt í fundinum.
Ráðherrarnir ræddu undirbúning leiðtogafundar Atlantshafsbandalagins sem fer fram í Ankara í júlí næstkomandi. Rætt var um mikilvægi þess að bandalagið vinni áfram að framkvæmd fyrirliggjandi ákvarðana um styrkingu sameiginlegra varna og að bandalagsríki auki framlög til málaflokksins í takt við ákvarðanir leiðtogafundarins í Haag í fyrra.
"Öryggi í Eystrasaltinu, á Norður-Atlantshafi og norðurslóðum er samofið. Öryggis- og varnarhagsmunir aðildarríkja Eystrasaltsráðsins fara saman, við viljum standa vörð um alþjóðalög, erum einhuga um áframhaldandi öflugan stuðning við Úkraínu og mikilvægi þess að stríðinu ljúki með réttlátum og varanlegum friði." segir Þorgerður Katrín.
Þá var umræða um þá stöðu sem er uppi í Mið-Austurlöndum. Miklar áhyggjur eru af áframhaldandi stigmögnun átaka, afleiðingum þess á almenna borgara og áhrifum á öryggismál til skemmri og lengri tíma í Mið-Austurlöndum, sem og í öðrum heimshlutum.
Þorgerður Katrín átti einnig fund með Espen Barth Eide, utanríkisráðherra Noregs. Þar var meðal annars núverandi staða alþjóðamála, samskiptin yfir Atlantsála og samvinna ríkjanna á vettvangi EES-samstarfsins til umræðu.
Í Eystrasaltsráðinu eiga sæti auk Íslands, Danmörk, Eistland, Finnland, Þýskaland, Lettland, Litáen, Noregur, Pólland og Svíþjóð ásamt Evrópusambandinu. Ísland tekur við formennsku í ráðinu af Póllandi 1. júlí næstkomandi.