03/26/2026 | Press release | Distributed by Public on 03/26/2026 06:26
Ísland og Kanada höfðu í vikunni pólitískt samráð um alþjóða-, öryggis- og varnarmál, en sendinefndir ríkjanna funduðu í húsakynnum utanríkisráðuneytisins við Austurhöfn og á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli.
Ný öryggis- og varnarmálastefna Íslands var lögð til kynningar í sérstökum umræðum um málaflokkinn og þá var þróun öryggismála á norðuslóðum og Norður Atlantshafi, viðbúnaður Atlantshafsbandalagsins og aukið tvíhliða samstarf ríkjanna sömuleiðis til umfjöllunar.
Þá heimsótti kanadíska sendinefndin öryggissvæðið á Keflavíkurflugvelli og fékk kynningu á þeirri varnartengdu starfsemi sem þar fer fram. Samráð þjóðanna um málaflokkinn var leitt af Jónasi G. Allanssyni, skrifstofustjóra varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, og Travis Morehen skrifstofustjóri í kanadíska varnarmálaráðuneytinu.
Þróun alþjóðamála var til umfjöllunar í samráði ríkjanna um alþjóðapólitísk málefni, þar sem stríðsátökin í Miðausturlöndum og innrásarstríð Rússlands í Úkraínu voru ofarlega á baugi. Þá voru málefni norðuslóða og samstarf Íslands og Kanada á vettvangi Norðurskautsráðsins sömuleiðis til umræðu, sem og áskoranir í alþjóðaviðskiptum, umbætur á stofnunum Sameinuðu þjóðanna, áherslur Íslands í mannréttindaráðinu og tvíhliða samstarf ríkjanna.
Hermann Ingólfsson, varaskrifstofustjóri skrifstofu alþjóðapólitískra málefna í utanríkisráðuneytinu, leiddi samráðið fyrir hönd Íslands og Gallit Dobner, skrifstofustjóri málefna norðurslóða, Evrasíu og Evrópu, fór fyrir sendinefnd Kanada.