07/02/2026 | Press release | Distributed by Public on 07/02/2026 09:17
Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur tryggt Landspítala fjármagn til kaupa á nýjum búnaði til klínískrar þjónustu í Þyrlum Landhelgisgæslunnar. Markmiðið er að auka öryggi sjúklinga þannig að fyrir hendi sé hentugur og fullnægjandi búnaður til að bregðast við öllum tilfellum sem upp geta komið við flutning bráðveikra og slasaðra í þyrlum.
Á síðustu árum hefur búnaður til sjúkraflutninga verið endurnýjaður og samræmdur í sjúkrabílum og sjúkraflugvélum. Annars vegar hafa verið veittar sérstakar fjárveitingar í þessu skyni til Sjúkrahússins á Akureyri sem ber ábyrgð á sjúkraflutningum í flugvélum og hins vegar hefur Rauði krossinn fjármagnað búnað í sjúkrabílum úr sérstökum sjúkrabílasjóði. Kaup á klínískum búnaði í þyrlurnar hafa aftur á móti fyrst og fremst verið fjármögnuð með söfnunarfé.
Ákvörðun ráðherra un endurnýjun búnaðar í þyrlum er í samræmi við aðgerðaáætlun fyrir sjúkraflutninga og bráðaþjónustu utan heilbrigðisstofnana til ársins 2030. Framlag sem Landspítali fær til búnaðarkaupanna nemur 48 milljónum króna á þessu ári. Þá er gert ráð fyrir árlegu framlagi frá og með næsta ári til að mæta afskriftum og reglulegri endurnýjun búnaðar eftir þörfum. Það verður á hendi Landspítala að velja og kaupa búnaðinn í þyrlurnar og hafa umsjón með því að hann virki eins og til er ætlast. Sambærilegt fyrirkomulag er gagnvart Sjúkrahúsinu á Akureyri sem ber ábyrgð á læknisþjónustu í sjúkraflugi.
"Það þarf ekki að fjölyrða um hve miklu skiptir að hafa allan nauðsynlegan klínískan búnað í farartækjum til sjúkraflutninga, hvort heldur í bílum, flugvélum eða þyrlum. Öryggi sjúklinga þarf að vera tryggt eins og kostur er og til þess þarf fagfólkið sem vinnur við flutningana að hafa góðan og viðeigandi búnað. Þetta þekki ég vel af eigin reynslu" segir Alma D. Möller heilbrigðisráðherra.