Government Offices of Iceland

03/10/2026 | Press release | Distributed by Public on 03/10/2026 09:55

Leiðbeiningar gefnar út um afmörkun hafnarsvæða

Innviðaráðuneytið hefur birt leiðbeiningar um afmörkun hafnarsvæða. Leiðbeiningunum er ætlað að tryggja samræmda afmörkun hafnarsvæða á Íslandi fyrir þá starfsemi sem þar fer fram.

Ávæði um afmörkun hafnarsvæðis allra hafna landsins voru endurskoðuð með lögum nr. 93/2024 um breytingu á hafnalögum (nr. 61/2003).

Eigendur hafna skulu senda innviðaráðuneytinu endurskoðuð ákvæði í hafnarreglugerðum um stærð og takmörk hafnarsvæðis á sjó, með hliðsjón af nýjum viðmiðum, eigi síðar en 1. janúar 2027.

Hafnir eru beðnar um að senda ekki uppfærslu annarra ákvæða samhliða þessum. Þá er þess vænst að hafnir sendi endurskoðuð ákvæði um afmörkun hafnarsvæðis í hafnarreglugerðum svo fljótt sem kostur er á.

Government Offices of Iceland published this content on March 10, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on March 10, 2026 at 15:55 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]