02/15/2026 | Press release | Distributed by Public on 02/15/2026 06:56
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sótti um helgina öryggisráðstefnuna í Munchen. Samskipti Evrópu og Bandaríkjanna voru í brennidepli á ráðstefnunni, líkt og í fyrra, en einnig öryggismál á norðurslóðum, allsherjarinnrás Rússlands í Úkraínu og fleira.
Utanríkisráðherra tók þátt í nokkrum hringborðsumræðum, t.d. um konur, frið og öryggi, um öryggismál á norðurslóðum og um öryggismál á hafi. Hún sótti fund varnarmálaráðherra JEF-ríkjanna svokölluðu, sem og fund utanríkisráðherra Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna (NB8) með utanríkisráðherra Úkraínu. Þá ávarpaði hún hádegisverðarfund um hækkun yfirborðs sjávar og áhrif á eyríki; og flutti opnunarávarp og sat í pallborði á fundi um stækkunarmál Evrópusambandsins. Þá ávarpaði hún og sat í pallborði með utanríkisráðherrum Póllands og Noregs á fundi um öryggismál í Eystrasaltinu og víðar. Enn fremur átti Þorgerður Katrín nokkra tvíhliða fundi, m.a. með David McGuinty, varnarmálaráðherra Kanada, Wopke Hoekstra, loftslagsstjóra Evrópusambandsins, Helen McEntee, utanríkis- og varnarmálaráðherra Írlands, Ervin Ibrahimović, utanríkisráðherra Svartfjallalands, Allison Hooker, aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna í pólitískum málefnum, og Boris Ruge, skrifstofustjóra öryggispólitískra málefna hjá Atlantshafsbandalaginu.
Þetta er í annað skipti sem Þorgerður Katrín sækir öryggisráðstefnuna í Munchen sem utanríkisráðherra. "Það skiptir gríðarlega miklu máli að taka þátt í umræðum hér í Munchen um málefni sem snerta mjög hagsmuni okkar Íslendinga og Evrópu allrar. Hér hefur gefist gott tækifæri til að taka þátt í skoðanaskiptum um þær áskoranir sem við blasa, meta hvert vindar blása og efla tengslanet okkar en slík ræktun samskipta skiptir svo miklu máli," segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.
Utanríkisráðherra heldur í dag áleiðis í vinnuheimsókn til Japans en hún mun m.a. funda með utanríkisráðherra Japans og utanríkisviðskiptaráðherra Japans, svo fátt eitt sé nefnt.