Government Offices of Iceland

05/09/2025 | Press release | Distributed by Public on 05/09/2025 03:22

Opnað fyrir styrki til garðyrkjubænda með reglugerð ráðherra

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur gert breytingu á reglugerð nr. 1566/2024 um Loftslags- og orkusjóð og falið sjóðnum að veita garðyrkjubændum sérstakan fjárfestingarstuðning í þágu bættrar orkunýtni og orkusparnaðar.

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrkina á vef Loftslags- og orkusjóðs. Þetta er í fyrsta skipti í áratugi sem stjórnvöld ráðast í skipulegan fjárfestingarstuðning við framleiðendur garðyrkjuafurða.

Styrkir verða veittir til fjárfestingar í orkusparandi tækni, svo sem LED-ljósum, tölvu- og stýribúnaði og gardínukerfum með áherslu á verkefni sem auka rekstrarhagkvæmni gróðurhúsa og styðja við tæknivæðingu og samkeppnishæfni greinarinnar.

Hámarks styrkhlutfall er 40% af heildarkostnaði og hámarksfjárhæð 15 m.kr. fyrir hvern framleiðanda. Stjórn Loftslags- og orkusjóðs mun annast úthlutun styrkjanna samkvæmt ákvörðun og áherslum ráðherra. Samtals eru 160 m.kr. til úthlutunar og rennur umsóknafrestur út 6. júní. Gert er ráð fyrir öðru umsóknarferli í janúar 2026.

Fjárfestingarstuðningnum er ætlað að koma til móts við háan stofnkostnað fyrir framleiðendur garðyrkjuafurða þegar skipt er yfir í orkusparandi búnað. Þannig verður stutt við orkunýtni, framleiðni og sjálfbæra matvælaframleiðslu á Íslandi.

Styrkir til orkusparandi aðgerða í gróðurhúsum

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 1566/2024 um Loftslags- og orkusjóð

Government Offices of Iceland published this content on May 09, 2025, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on May 09, 2025 at 09:22 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at support@pubt.io