02/16/2026 | Press release | Distributed by Public on 02/16/2026 11:23
Frumvarp dómsmálaráðherra um breytingu á lögum um útlendinga var samþykkt einróma á Alþingi í dag. Með lagabreytingunum verður stjórnvöldum heimilt að afturkalla alþjóðlega vernd þegar útlendingur hefur framið alvarleg eða ítrekuð brot, sem og þeirra sem ógna öryggi ríkisins. Þá er jafnframt afnumin hin séríslenska 18 mánaða regla um að umsækjandi um alþjóðlega vernd fái sjálfkrafa dvalarleyfi vegna tafa á málsmeðferð.
Meginmarkmið frumvarpsins er að hér á landi séu ekki einstaklingar með alþjóðlega vernd sem framið hafa alvarleg afbrot, teljist ógn við öryggi ríkisins eða fremji ítrekuð afbrot sem ógna allsherjarreglu eða almannaöryggi.
"Afbrot hafa afleiðingar. Það er lágmarkskrafa að þeir sem fá alþjóðlega vernd hér á landi virði lög og ógni ekki öryggi samfélagsins. Við ætlum ekki að líða að einstaklingar sem fremja alvarleg eða ítrekuð afbrot njóti áfram verndar. Með þessum breytingum setjum við skýr mörk og stöndum vörð um öryggi almennings," segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir ráðherra.
Sú breyting sem samþykkt var á Alþingi í dag miðar að því að samræma lög um útlendinga við löggjöf annarra Norðurlanda í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. Ísland hefur verið eina Norðurlandaþjóðin sem ekki hefur haft heimild til afturköllunar verndar í sinni löggjöf. Þá hefur Ísland eitt Norðurlandanna heimilað sjálfkrafa veitingu dvalarleyfis vegna tafa á málsmeðferð.