01/10/2025 | Press release | Distributed by Public on 01/10/2025 11:18
Varnarmálaráðherrar ríkja sem styðja varnarbaráttu Úkraínu (Ukraine Defence Contact Group) funduðu í gær um stöðuna á vígvellinum og stuðning ríkjanna við baráttu íbúa Úkraínu gegn innrásarstríði Rússlands. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sótti fundinn í beinu framhaldi af heimsókn sinni til Kænugarðs þar sem hún ræddi við ráðamenn og kynnti sér afleiðingar stríðsins.
"Það var skýr samstaða á fundinum um mikilvægi þess að styðja við varnarbaráttu Úkraínu sem er samofin okkar eigin öryggi. Við kynntum starf ríkjahóps sem við leiðum ásamt Litháen sem vinnur að sprengjuleit- og eyðingu og þeim stuðningi sem Ísland veitir til varnar Úkraínu. Hann er alfarið í takt við það sem Úkraínumenn hafa sjálfir verið að óska eftir og við hlustum að sjálfsögðu. Þetta er sömuleiðis í takti við samþykktir Alþingis," segir Þorgerður Katrín.
Volodómír Selenskí, forseti Úkraínu, sótti fundinni og þakkaði fyrir stuðning ríkjanna og gerði grein fyrir helstu áherslumálum Úkraínu í vörnum landsins. Rætt var um stöðu stríðsins og um áframhaldandi stuðningsaðgerðir, þar með talið þjálfunarverkefni, fjárfestingar og hergögn. Varnarmálaráðherrar og fulltrúar um fimmtíu ríkja sem styðja varnarbaráttu Úkraínu sóttu fundinn ásamt Rustem Umerov, varnarmálaráðherra Úkraínu, og Mark Rutte, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins. Fundurinn fór fram í Ramstein í Þýskalandi.