Government Offices of Iceland

02/05/2026 | Press release | Distributed by Public on 02/05/2026 09:21

Ráðherra skipar stýrihóp um stefnu og skipulag löggæslu

Dómsmálaráðherra hefur skipað stýrihóp um stefnumótun í löggæslu. Hópnum er falið að marka heildstæða stefnu, skipulag og framtíðarsýn fyrir íslenska lögreglu og greina þróun löggæslumála til lengri tíma.

Markmiðið er að tryggja faglega forgangsröðun og skilvirka ráðstöfun fjárveitinga þannig að lögreglan geti byggt upp mannauð, búnað, tækni og verkferla með langtímasjónarmið að leiðarljósi. Stýrihópurinn mun jafnframt skilgreina skýra og markvissa mælikvarða til að meta árangur í löggæslu, einkum með hliðsjón af þjónustustigi og öryggi almennings. Grímur Grímsson þingmaður og fyrrum yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu leiðir vinnuna.

"Það er ein af frumskyldum ríkisins að tryggja öryggi almennings. Til að standa undir því þurfum við skýra stefnu sem byggir á greiningum, raunhæfri forgangsröðun og mælanlegum markmiðum. Með þessari vinnu erum við að skapa traustan grunn fyrir löggæslu framtíðarinnar," segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra.

Öryggiskennd í samfélaginu mikilvæg

Meðal þess sem leggja á áherslu á í nýrri löggæsluáætlun er þróun skipulagðrar brotastarfsemi, málefni landamæra, samfélagslöggæslu, kynferðisbrot, efnahagsbrot og netbrot. Jafnframt verður horft til mikilvægi sýnileika lögreglu, trausts almennings og öryggiskenndar í samfélaginu.

Við vinnuna verður jafnframt litið til reynslu annarra Norðurlanda og hvernig unnt sé að nýta lærdóm af þeirra stefnumótun og stjórntækjum í löggæslumálum.

Stýrihópurinn mun starfa náið með öllum lögregluembættum og lögregluráði, embættum ríkisaksóknara og héraðssaksóknara, auk þess að leita sjónarmiða félagasamtaka, fræðasamfélags og viðeigandi stofnana.

Stýrihópurinn er þannig skipaður:

  • Grímur Grímsson, formaður
  • Birgir Jónasson
  • Grímur Hergeirsson
  • Margrét Kristín Pálsdóttir
  • Rannveig Þórisdóttir
  • Stefán Sveinsson

Gert er ráð fyrir að vinnu hópsins ljúki vorið 2026.

Government Offices of Iceland published this content on February 05, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on February 05, 2026 at 15:21 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]