The President of Iceland

10/17/2024 | Press release | Distributed by Public on 10/18/2024 11:13

Lisa Murkowski

Fréttir|17. okt. 2024

Lisa Murkowski

Forseti fundar með Lisu Murkowski, fulltrúa Alaska í öldungadeild Bandaríkjaþings. Hún er hér á landi í tengslum við Hringborð norðurslóða sem fer nú fram í Hörpu í Reykjavík. Rætt var um sameiginlega hagsmuni og ábyrgð ríkja á norðurhveli jarðar, meðal annars varðandi lausnir við loftslagsvánni og nýtingu endurnýjanlegrar orku. Öldungadeildarþingmaðurinn greindi frá tækifærum til frekari nýtingu jarðvarma í Alaska. Rætt var um komandi kosningar í nóvember, bæði í Bandaríkjunum og á Íslandi, horfur að kosningum loknum og um sameiginlegar áskoranir beggja vegna Atlantshafsins. Þá var rætt um árásarstríð Rússa í Úkraínu, áhrif þess á samstarf í Norðurskautsráðinu og mikilvægi áframhaldandi stuðnings við Úkraínufólk.

Deila
The President of Iceland published this content on October 17, 2024, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on October 18, 2024 at 17:13 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]