07/01/2026 | Press release | Distributed by Public on 07/01/2026 04:53
Frá og með 1. júlí 2026 er aðeins þeim aðilum sem hafa fengið starfsleyfi sem þjónustuveitandi sýndareigna (Crypto-Asset Service Provider - CASP), samkvæmt lögum nr. 101/2025 um markaði fyrir sýndareignir, heimilt að veita þjónustu með sýndareignir. Lögin tóku gildi 1. janúar 2026 og innleiddu reglugerð (ESB) 2023/1114 um markaði fyrir sýndareignir (Markets in Crypto-Assets Regulation - MiCA).
Samkvæmt 143. gr. MiCA fengu þjónustuveitendur, sem skráðir voru samkvæmt lögum nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka við gildistöku laga nr. 101/2025, aðlögunartímabil til 1. júlí 2026 til að afla starfsleyfis samkvæmt hinu nýja regluverki.
Þjónustuveitendur án starfsleyfis skulu hætta starfsemi
Frá og með 1. júlí 2026 verður ekki lengur heimilt að veita þjónustu með sýndareignir á grundvelli skráningar samkvæmt lögum nr. 140/2018. Aðeins þeir aðilar sem hafa fengið starfsleyfi samkvæmt MiCA mega veita slíka þjónustu.
Þjónustuveitendur sem ekki hafa fengið starfsleyfi skulu hætta þeirri starfsemi sem fellur undir MiCA og gera nauðsynlegar ráðstafanir til að ljúka henni. Í því felst að þeir hætti þjónustu með sýndareignir, að öðru leyti en því sem nauðsynlegt er til að ljúka starfseminni með skipulegum hætti, stöðvi alla markaðssetningu og taki ekki við nýjum viðskiptavinum. Þá skulu þeir tryggja að engar ráðstafanir verði gerðar sem jafngilda áframhaldandi starfsleyfisskyldri starfsemi eftir lok aðlögunartímabilsins.
Þau félög sem veitt hafa þjónustu með sýndareignir á grundvelli skráningar samkvæmt lögum nr. 140/2018 en eru ekki með starfsleyfi sem þjónustuveitendur sýndareigna skv. MiCA hinn 1. júlí 2026 eru IsMynt ehf., Orange Gateway ehf., Rafmyntasjóður Íslands ehf. og Monerium hf. Monerium hf. starfar þó áfram sem rafeyrisfyrirtæki og útgefandi rafeyristóka (EMT) skv. MiCA.
Þjónustuveitendur skulu upplýsa viðskiptavini
Aðilar sem hætta starfsemi sem þjónustuveitendur sýndareigna skulu tryggja að viðskiptavinir þeirra fái án tafar skýrar upplýsingar um stöðu sína og þau úrræði sem þeim standa til boða. Upplýsingarnar skulu meðal annars taka til þess hvernig viðskiptavinir geta flutt sýndareignir sínar, lokað stöðum, tekið út fjármuni eða fært viðskipti sín til þjónustuveitanda sem hefur viðeigandi starfsleyfi. Upplýsingarnar skulu vera settar fram með þeim hætti að viðskiptavinir geti brugðist við innan hæfilegs tíma og án óþarfa óvissu eða tjóns.
Viðskiptavinir eru hvattir til að kanna hvort þjónustuveitandi hafi starfsleyfi
Viðskiptavinir sem nýta þjónustu með sýndareignir eru hvattir til að kanna hvort þjónustuveitandi þeirra hafi starfsleyfi samkvæmt MiCA. Upplýsingar um þjónustuveitendur með starfsleyfi má finna á vef Seðlabanka Íslands sem og í opinberri skrá á vef Evrópsku verðbréfamarkaðseftirlitsstofnunarinnar (ESMA).
Viðskiptavinir sem nýta þjónustu aðila sem ekki hafa fengið starfsleyfi eru hvattir til að grípa án tafar til nauðsynlegra ráðstafana, svo sem með því að flytja sýndareignir sínar til þjónustuveitanda með starfsleyfi eða í eigið stafrænt veski.
Seðlabanki Íslands hefur eftirlit með framkvæmd reglnanna
Seðlabankinn mun fylgjast náið með því að þjónustuveitendur sem ekki hafa starfsleyfi grípi án tafar til nauðsynlegra ráðstafana og hætti starfsleyfisskyldri starfsemi í samræmi við gildandi lög og reglur. Seðlabankinn mun bregðast við ef þjónusta með sýndareignir sem krefst starfsleyfis heldur áfram eftir lok aðlögunartímabilsins.
Seðlabankinn vekur jafnframt athygli á frétt bankans sem birt var 24. júní 2026 um tilkynningu ESMA um þær kröfur sem gerðar eru til þjónustuveitenda sýndareigna sem ekki hafa fengið starfsleyfi samkvæmt MiCA þegar aðlögunartímabili lýkur 1. júlí 2026. Fréttina má nálgast hér: Seðlabanki Íslands | ESMA hvetur þjónustuveitendur sýndareigna án starfsleyfis til að hætta starfsemi í ESB.