Government Offices of Iceland

05/08/2026 | Press release | Distributed by Public on 05/08/2026 09:46

Starfshópur skipaður til að greina mikilvæga innviði á Reykjanesskaga og forgangsraða mótvægisaðgerðum

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur skipað starfshóp til að greina mikilvæga innviði á Reykjanesskaga og gera tillögu að forgangsröðun mótvægisaðgerða gegn ógn við þessa innviði af völdum náttúruvár. Starfshópnum er ætlað að halda áfram vinnu sem þegar hefur farið fram við greiningu mikilvægra innviða á svæðinu auk greiningar og mats á mótvægisaðgerðum . Um er að ræða undirbúning langtímastefnumörkunar á þessu sviði frekar en viðbragðsáætlana sem eru á verksviði almannavarna.

Starfshópurinn er skipaður fulltrúum innviðaráðuneytis, dómsmálaráðuneytis, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis, Háskóla Íslands, Veðurstofu Íslands og Almannavarnardeildar ríkislögreglustjóra. Þess er vænst að vinna starfshópsins nýtist við áframhaldandi sambærilega greiningu á öðrum svæðum á Suðvesturlandi og öðrum landshlutum. Í verkefninu felst m.a. að:

  • Safna saman og yfirfara fyrirliggjandi upplýsingar og greiningar og láta framkvæma þær frekari greiningar sem þörf er á.
  • Leggja mat á hvaða innviðir á Reykjanesskaga, vestan Kleifarvatns, eru nauðsynlegir íbúum og atvinnulífi. Jafnframt verða metnir eftir atvikum ómissandi innviðir á öðrum svæðum á Suðvesturlandi eftir því sem nauðsynlegt er talið vegna samhengis við verkefni starfshópsins.
  • Greina mögulegar mótvægisaðgerðir gegn ógn við þessa innviði.
  • Greina kostnað og ábata við mótvægisaðgerðir.
  • Gera tillögu að forgangsröðun mótvægisaðgerða.
  • Meta þörf á lagabreytingum til að styðja við markmið verkefnisins, þ.m.t. þörf og útfærslu á almennri löggjöf um fyrirbyggjandi ráðstafanir til verndar mikilvægum innviðum.

Skýrslu verði lokið fyrir júní 2027

Gert er ráð fyrir því að starfshópurinn skili lokaskýrslu sinni til ráðherra fyrir lok maí 2027. Í henni verði gerð grein fyrir þeim mikilvægu innviðum sem eru á svæðinu og mótvægisaðgerðum forgangsraðað á grundvelli niðurstaðna starfshópsins.

Skipan starfshópsins kemur í kjölfar þess að Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra sendi stýrihópi um málefni Grindavíkur bréf þar sem fram kemur það mat deildarinnar að nauðsynlegt sé að halda áfram því verkefni að greina alla mikilvæga innviði á Reykjanesi með það að markmiði að skoða mótvægisaðgerðir gegn mismunandi sviðsmyndum jarðskjálfta, eldgosa og hraunflæðis og var lagt til að innviðaráðuneytið tæki að sér að leiða þá vinnu.

Government Offices of Iceland published this content on May 08, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on May 08, 2026 at 15:46 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]