05/28/2026 | Press release | Distributed by Public on 05/28/2026 12:45
Ísland sækist eftir sæti í framkvæmdastjórn Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) fyrir tímabilið 2027-2030. Áherslur Íslands eru m.a. mikilvægi öflugs alþjóðlegs samstarfs og samvinnu, gagnsæi og jafnræði í stjórnsýslu stofnunarinnar, jafnt aðgengi að heilbrigðisþjónustu og áhersla á öfluga heilsugæslu. Þá er lögð áhersla á að heilsa og velferð barna og ungmenna sé ávallt í forgrunni. Fulltrúi Íslands í framboðinu er Ásta Valdimarsdóttir ráðuneytisstjóri í heilbrigðisráðuneytinu. Ásta hefur víðtæka reynslu af alþjóðlegu samstarfi innan WHO, OECD, ESB og Sameinuðu þjóðanna og gegnir nú formennsku í fastanefnd Evrópuskrifstofu WHO (SCRC).
Ísland átti síðast fulltrúa í framkvæmdastjórninni árin 2003-2006 þegar Davíð Á. Gunnarsson þáverandi ráðuneytisstjóri átti þar sæti. Norðurlöndin hafa um langt skeið haft með sér óformlegt samstarf um setu í framkvæmdastjórninni og skiptast að jafnaði á að sækjast eftir sæti. Norðmenn sitja nú í stjórninni.
Nú liggja einnig fyrir framboð tveggja Evrópuþjóða um sama sæti, þ.e. af hálfu Þýskalands og Lúxemborgar. Hvort Ísland hreppir stjórnarsætið ræðst á fundum í haust en ákvörðun um það er í hendi Evrópuskrifstofu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar og framkvæmdastjórnarinnar.