Government Offices of Iceland

03/17/2026 | Press release | Distributed by Public on 03/17/2026 11:46

Styrkir veittir til frjálsra félagasamtaka til verkefna á sviði félagsmála

Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, veitti í dag styrki til félagasamtaka sem starfa á málefnasviði félags- og húsnæðismálaráðuneytisins. Veittir voru samtals 20 styrkir til reksturs og fjölbreyttra verkefna. Auglýst var eftir umsóknum um styrki og var bæði hægt að sækja um verkefnastyrki og rekstrarstyrki.

 Yfirlit yfir styrkþega

"Sú þjónusta og sá stuðningur sem veittur er innan frjálsra félagasamtaka skiptir samfélagið verulegu máli og er afar mikilvæg viðbót við velferðarkerfið okkar," sagði Ragnar Þór þegar hann ávarpaði styrkþega. Með nánum tengslum við ykkar fólk hafið þið jafnframt einstaka innsýn í stöðu samfélagsins hverju sinni og þið eruð oftar en ekki fyrst til að sjá hvar áskoranirnar liggja og hvar skórinn kreppir."

Ráðherra benti auk þess á að í starfsemi félagasamtaka yrðu oft til nýjar hugmyndir og lausnir sem mikilvægt væri að fá tækifæri til að þróa áfram. "Velferðarstyrkirnir geta því haft mikla þýðingu fyrir félagasamtök og gefur þeim tækifæri til þess að efla starf sitt og þróa ný verkefni og leiðir til þess að styðja sem best við okkar viðkvæmustu hópa og í takt við þróun og breytingar sem sífellt eiga sér stað í samfélaginu," sagði hann.

Hefð hefur skapast fyrir því að valdir styrkþegar kynni verkefni sem þeir hljóta styrk fyrir. Að þessu sinni kynnti Jökull Jóhannsson frá Rafíþróttasambandi Íslands verkefnið Ný tækifæri á vinnumarkaði.  

Frá styrkveitingunni í dag.

Ráðherra og styrkþegar.

Jökull Jóhannsson kynnir verkefnið Ný tækifæri á vinnumarkaði.

Government Offices of Iceland published this content on March 17, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on March 17, 2026 at 17:46 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]