03/02/2026 | Press release | Distributed by Public on 03/02/2026 05:50
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra átti fyrir helgi fund með Diene Keita, framkvæmdastjóra Mannfjöldasjóðs Sameinuðu þjóðanna (UNFPA) sem var stödd á Íslandi á ferð sinni um Norðurlöndin. Á fundinum ræddu þær m.a. samstarf Íslands og UNFPA, bakslag í jafnréttismálum og yfirstandandi umbótastarf innan Sameinuðu þjóðanna. Framkvæmdastjórinn fundaði einnig með formanni utanríkismálanefndar og dómsmálaráðherra auk þess að eiga samtal við ungmenni sem vinna að málefnum Sameinuðu þjóðanna.
Mannfjöldasjóður Sameinuðu þjóðanna vinnur mikilvægt og lífsbjargandi starf um heim allan og leggur áherslu á að tryggja kyn- og frjósemisheilbrigði og -réttindi í þróunarlöndum. Stofnunin sinnir m.a. fræðslu og þekkingaruppbyggingu í tengslum við fjölskylduáætlanir, veitir heilbrigðisþjónustu, og heldur úti fjölbreyttum verkefnum sem miða að því að draga úr tíðni mæðradauða og fæðingarkvilla, og koma í veg fyrir kynbundið ofbeldi og skaðlegar hefðir.
Í stefnu Íslands í alþjóðlegri þróunarsamvinnu er lögð áhersla á mannréttindi og jafnréttismál og þar er Mannfjöldasjóðurinn mikilvægur samstarfsaðili, bæði í fjölþjóðlegri þróunarsamvinnu og í samstarfsríkjum Íslands, Malaví, Úganda og Sierra Leóne, en UNFPA leiðir samhæfingu stofnana SÞ í mannúðaraðstæðum þegar kemur að kynbundnu ofbeldi og þjónustu á sviði kyn- og frjósemisheilbrigðis.