03/03/2026 | Press release | Distributed by Public on 03/03/2026 09:51
Þjóðhagsráð hélt í gær sinn fyrsta fund á árinu. Á fundinum voru til umræðu staða efnahagsmála, staða aðgerða stjórnvalda til að greiða fyrir langtímakjarasamningum í mars 2024 og þróun launa á undanförnum misserum.
Þjóðhagsráð kemur saman minnst fjórum sinnum á ári og fjallar um stöðu í efnahags- og félagsmálum og ræðir samhengi opinberra fjármála, peningastefnu og kjaramála í tengslum við helstu viðfangsefni hagstjórnar hverju sinni.
Kynningar og minnisblöð sem kynnt voru á fundinum á mánudag eru nú aðgengileg. Á fundinum kynntu fulltrúar Seðlabanka Íslands annars vegar stöðu og horfur í efnahagsmálum og hins vegar umfjöllun um þróun launa á undanförnum misserum. Þá kynnti fjármála- og efnahagsráðherra minnisblað um stöðu efnahagsmála.
Jafnframt kynnti forsætisráðherra minnisblað um stöðu aðgerða til að greiða fyrir langtímakjarasamningum í mars 2024 sem ríkisstjórn og Samband íslenskra sveitarfélaga stóð sameiginlega að.
Gert er ráð fyrir að þjóðhagsráð komi næst saman til fundar í lok apríl næstkomandi.