The President of Iceland

02/07/2026 | Press release | Archived content

„Hæfni ykkar er framtíðarhæfni“

Fréttir | 07. feb. 2026

"Hæfni ykkar er framtíðarhæfni"

Forseti flutti ávarp og veitti viðurkenningar á árlegri Nýsveinahátíð Iðnaðarmannafélags Reykjavíkur sem fram fór á Hótel Natura. Þetta er í 20. skipti sem hátíðin fer fram og hefur forseti frá upphafi verið verndari hennar.

Á hátíðinni var 33 nýsveinum veitt viðurkenning fyrir framúrskarandi árangur á sveinsprófi á liðnu ári. Heiðursiðnaðarmenn félagsins 2026 eru þau Kristín Magnúsdóttir blómaskreytir og Tómas Bergþór Þorbjörnsson húsgagna­smiður. Þau fengu viðurkenningu fyrir vel unnin störf og vinnu við framgang iðnar og menntunar á sínum sviðum.

Í ávarpi sínu á Nýsveinahátíðinni ræddi forseti meðal annars um þær áskoranir sem gervigreind hefur í för með sér á vinnumarkaði. Um það efni sagði hún meðal annars:

"En það er mikilvægt að muna að þótt gervigreind sé fær um margt þá getur hún ekki allt. Hún getur ekki brett upp ermar og mætt á svæðið, metið aðstæður með eigin augum eða brugðist við óvæntum vandamálum. Og það er henni líklega ofviða að "kippa einhverju í liðinn" þegar allt er í hnút og þörf er á reynslu, skynsemi og góðum skammti af íslenskri útsjónarsemi. Gervigreindin getur heldur ekki lofað að "fínpússa þetta í fyrramálið" og staðið við það. Hæfni ykkar er því ekki aðeins gagnleg - hún er framtíðarhæfni. Hún byggir á mannlegri þekkingu, lipurð, ábyrgð og fagmennsku sem verða sífellt verðmætari í heimi sjálfvirkni og skjágláps."

Unnt er að lesa ávarpið í heild sinni á hér á vef embættisins.

Deila
The President of Iceland published this content on February 07, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on February 09, 2026 at 14:42 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]