Government Offices of Iceland

03/18/2026 | Press release | Distributed by Public on 03/18/2026 12:21

Vilja tryggja jafngilda þátttöku og endurskoða því Helsingforssamninginn

Logi Einarsson, samstarfsráðherra Norðurlanda, sótti á mánudaginn fjarfund samstarfsráðherra Norðurlanda þar sem samþykkt var að koma á fót nefnd til endurskoðunar á Helsingforssamningnum. Upphaflegi samningurinn er frá árinu 1962 og myndar umgjörð fyrir formlega norræna samstarfið í Norðurlandaráði og Norrænu ráðherranefndinni.

Hlutverk nefndarinnar verður að vinna breytingatillögur sem geta tryggt jafngilda þátttöku Færeyja, Grænlands og Álandseyja í Norðurlandaráði og Norrænu ráðherranefndinni. Nefndin mun verða skipuð einum fulltrúa frá hverju landanna átta.

Nýlega var unnin úttekt á lagalegum atriðum sem hugsanleg breyting á samningnum kynni að hafa í för með sér og var hún afhent norrænu ríkisstjórnunum í febrúar síðastliðnum. Í kjölfarið samþykktu norrænu ríkisstjórnirnar að setja á fót nefnd til endurskoðunar á Helsingforssamningnum.

Nánari upplýsingar um fundinn á heimasíðu Norrænu ráðherranefndarinnar má nálgast hér.

Government Offices of Iceland published this content on March 18, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on March 18, 2026 at 18:21 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]