Government Offices of Iceland

04/14/2026 | Press release | Distributed by Public on 04/14/2026 10:47

Ráðherra styður áskorun til skipuleggjenda Feneyjartvíæringsins

Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráherra hefur sent skipuleggjendum Feneyjatvíæringsins (e. La Biennale di Venezia) bréf varðandi þátttöku Rússlands í hátíðinni. Tvíæringurinn í myndlist er mikilsvirt alþjóðleg hátíð sem haldin er annað hvert ár í Feneyjum en Ísland hefur tekið þátt frá árinu 1960.

Tilefni bréfsins er að lýsa yfir stuðningi við áskorun sem menningarmálaráðherrar og utanríkisráðherrar 22 Evrópulanda sendu nýverið til skipuleggjenda um að endurskoða þátttöku Rússlands. Í áskoruninni lýsa ráðherrarnir yfir verulegum áhyggjum af því að Rússland nýti þátttöku sína í Tvíæringnum til að varpa upp mynd af lögmæti og alþjóðlegri viðurkenningu sem stenst ekki raunveruleikann. Sú ímynd stangast á við áframhaldandi stríðsrekstur Rússlands í Úkraínu, eyðileggingu á úkraínskum menningararfi og gildandi evrópskar og alþjóðlegar refsiaðgerðir. Í ljósi framangreinds telja ráðherrarnir þátttöku Rússlands í Feneyjatvíæringnum óásættanlega við núverandi aðstæður.

Með bréfi menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra Íslands eru Evrópulöndin því orðin 23 sem skora á skipuleggjendur að endurskoða þátttöku Rússlands í Feneyjatvíæringnum í myndlist sem hefst 9. maí nk.

Myndlistarmiðstöð hefur umsjón með íslenska skálanum fyrir hönd menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins. Sjá nánar um þátttöku Íslands hér.

Government Offices of Iceland published this content on April 14, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on April 14, 2026 at 16:47 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]