Government Offices of Iceland

02/20/2026 | Press release | Distributed by Public on 02/20/2026 07:49

Undirrituðu viljayfirlýsingu um menningarsamstarf

Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, undirritaði í vikunni viljayfirlýsingu um menningarsamstarf Íslands og Indlands á tímabilinu 2026-2030. Yfirlýsingin byggir á eldri menningar samningum milli landanna frá árunum 2005 og 2019.

Undirritunin fór fram í Nýju-Delí þar sem ráðherra sat leiðtogafund um gervigreind auk þess sem hann kynnti sér menningu og háskólastarfsemi í Varanasi. Yfirlýsingin felur í sér að menningarstofnanir og aðrir sem taka þátt í menningarstarfi eru hvattir til samstarfs og vináttutengsla, samkvæmt þeim venjum, hefðum og styrkjakerfum sem gilda í hvoru landi fyrir sig.

Viljayfirlýsingin er í 16 liðum og nær m.a. til samstarfs á sviði tónlistar, dans, sviðslista, myndlistar, ráðstefnuhalds, safna, bókasafna, varðveislu menningararfs, vísindamiðlunar og menningarrannsókna. Dr. Arvinda Kumar, fulltrúi menningarmálaráðuneytis Indlands, undirritaði yfirlýsinguna fyrir hönd Indlands en liðlega 600 Indverjar eru búsettir á Íslandi.

"Það er gaman að finna hversu mikill áhugi er í Indlandi fyrir menningarsamstarfi við Ísland. Þessar þjóðir eiga heilmikið sameiginlegt, svo sem að vinna ötullega að varðveislu og miðlun fornminja og annars menningararfs. Mjög gott dæmi um þetta er varðveisla handrita," segir Logi.  Þannig fengu bæði löndin viðurkenningu UNESCO á óáþreifanlegum menningararfi í desember síðastliðnum, Ísland fyrir sundlaugarmenningu en Indland fyrir ljósahátíðina sína, Deepavali.

Það er von ráðherra að með undirritun vilja yfirlýsingar séu reistar stoðir undir menningarbrú milli þjóðanna tveggja. Því fylgi aukinn kraftur í samskiptum menningarstofnana þjóðanna og miðlun þeirra á fjölbreyttri menningarstarfsemi ríkjanna.

Government Offices of Iceland published this content on February 20, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on February 20, 2026 at 13:49 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]