02/11/2026 | Press release | Distributed by Public on 02/11/2026 06:25
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið og utanríkisráðuneytið og boða til opins kynningarfundar miðvikudaginn 18. febrúar kl. 11.00-12:30 um þátttöku Íslands í samstarfsáætlunum ESB 2028-2034.
Kynningin verður einungis aðgengileg í streymi. Skráning á viðburðinn fer fram HÉR.
Framkvæmdastjórn ESB birti nýlega tillögur að nýjum samstarfsáætlunum fyrir tímabilið 2028-2034. Umfangsmiklar breytingar eru boðaðar á skipulagi og framkvæmd áætlana sem Ísland á aðild að á grundvelli EES. Menningar, nýsköpunar og háskólaráðuneytið og utanríkisráðuneytið og leiða undirbúning með þátttöku annarra ráðuneyta vegna yfirstandandi mats á áframhaldandi þátttöku á næsta starfstímabili. Breytingarnar verða kynntar á fundinum og boðið verður upp á spurningar að því loknu.
Stærsta breytingin frá núverandi fyrirkomulagi felst í stofnun nýs Samkeppnishæfnissjóðs (e. European Competitiveness Fund, ECF). Sjóðnum er ætlað að stórefla fjárfestingar og stuðning við nýsköpun og tækniþróun. Fjármagn verður aukið verulega til að efla viðnámsþrótt, öryggi, geim- og varnariðnað. Eftirfarandi áætlanir með þátttöku Íslands verða allar sameinaðar undir merkjum Samkeppnishæfnisjóðsins: Umhverfis- og lofslagsáætlunin Life, heilbrigðisáætlunin EU4Health, Digital Europe um stafræna tækni, Geimáætlun ESB, Iris2 um örugga samskiptatækni og fjárfestingáætlunin InvestEU. Rannsókna- og nýsköpunaráætlunin Horizon Europe verður áfram sjálfstæð áætlun, þó með verulegri samþættingu við Samkeppnishæfnisjóðinn. Þá verður aukin áhersla lögð á rannsóknir og tækniþróun með tvíþætt notagildi (e. dual-use).
Æskulýðs- og ungmennaáætluninni Erasmus+ breytist lítillega og sjálfboðaáætlunin European Solidarity Corps sameinast Erasmus+. Ný áætlun, AgoraEU, mun sameina menningar- og kvikmyndaáætlunina Creative Europe við áætlun um borgaralega þátttöku, jafnrétti, réttindi og gildi (e. Citizens, Equality, Rights and Values Programme, CERV). Áætlun um innri markaðs- og tollamál (e. Single Market and Customs programme, SMCP) mun sameina stærstan hluta af núgildandi áætlun um innri markaðsmál (e. Single Market Programme, SMP), sem Ísland á aðild að, við aðrar áætlanir á sviði tolla, skatta og ráðstafana gegn fjársvikum. Almannavarnaráætlunin (e. Union Civil Protection Mechanism, UCPM) verður styrkt verulega til að auka samvinnu um forvarnir, undirbúning og viðbragð við náttúru- og heilsuvá sem og manngerðri hættu.
Opið samráð um þátttöku Íslands í samstarfsáætlunum ESB 2028-2034 hefst innan skamms á samráðsgátt stjórnvalda.
Dagskrá: