05/27/2026 | Press release | Distributed by Public on 05/27/2026 09:23
Sérstaða Íslands með tilliti til millilandaflugs og viðskiptakerfis með losunarheimildir var áréttuð á fundi EES-ráðsins fyrr í dag. Þá ítrekaði Ísland andstöðu sína við verndaraðgerðir ESB gagnvart járnblendi. Í sameiginlegum niðurstöðum fundarins var lögð áhersla á góða framkvæmd og virkni innri markaðar EES.
Meginumræðuefni fundarins, sem fram fór í Brussel, var framkvæmd EES-samningsins og samkeppnishæfni og grænn vöxtur á innri markaðnum. Á fundinum lagði Ísland áherslu á að samkeppnishæfni og sjálfbærni séu markmið sem geta styrkt hvert annað og að íslenskt hagkerfi treysti á góða virkni innri markaðarins. Áfram þurfi að tryggja jafnan samkeppnisgrundvöll og fyrirsjáanleg skilyrði fyrir fyrirtæki til að hvetja til fjárfestinga. Lagði Ísland í þessu sambandi áherslu á mikilvægi einföldunar regluverks og þess að minnka óþarfa skrifræði.
Fulltrúar EFTA-ríkjanna þriggja innan EES áttu einnig pólitískt samráð við Kaja Kallas, utanríkismálastjóra Evrópusambandsins, þar sem m.a. var rætt um stöðu mála í Úkraínu og Mið-Austurlöndum sem og málefni norðurslóða.
EES-ráðið er pólitískur vettvangur EES-samstarfsins og fara fundir þess fram tvisvar á ári. Þar hittast fulltrúar EFTA-ríkjanna innan EES auk fulltrúa framkvæmdastjórnar ESB sem og fulltrúa þess ríkis sem fer með formennsku í ráðherraráði ESB hverju sinni, en Kýpur fer nú með formennsku í ráðinu. Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, sótti fundinn fyrir Íslands hönd.