Samskipti Íslands og Þýskalands, efnahagslegt öryggi og þróun innri markaðarins og alþjóða- og öryggismál voru meðal þess sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, ræddi á fundum sínum með Gunther Krichbaum, Evrópumálaráðherra Þýskalands, og Anton Hofreiter, formanni Evrópumálanefndar þýska sambandsþingsins, í Berlín í gær. Á fundunum var einnig greint frá þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið.
"Þjóðverjar eru mikilvægir vinir og traustir bandamenn okkar Íslendinga. Við tölum til að mynda fyrir virðingu fyrir alþjóðalögum, lýðræði og mannréttindum. Við leggjum einnig áherslu á öflugt atvinnulíf og sterkan innri markað EES. Það er kraftur í tvíhliða samskiptum ríkjanna, hvort sem litið er til viðskipta, menningar eða varnarsamstarfs. Á fundum mínum fann ég mikinn samhljóm hvað þessi mál varðar og vilja til að stuðla að frekari styrkingu sambands Íslands og Þýskalands," segir Þorgerður Katrín.
Í fyrradag heimsótti Þorgerður Katrín Alþjóðlega hafréttardómstólinn í Hamborg. Dómstóllinn starfar á grundvelli hafréttarsamnings Sameinuðu þjóðanna sem Ísland er aðili að og fagnar dómstóllinn 30 ára afmæli á þessu ári. Forseti dómstólsins, Tómas H. Heiðar, tók á móti Þorgerði Katrínu og kynnti starfsemina. Þau ræddu meðal annars mikilvægt hlutverk dómstólsins í hinu reglubundna alþjóðakerfi og nýlega
yfirlýsingu Íslands um samþykkt lögsögu dómstólsins í deilumálum um túlkun hafréttarsamningsins og undirsamninga hans.
Þá sótti Þorgerður Katrín tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Elbphilharmonie-tónleikahöllinni í Hamborg á fimmtudagskvöld, hitti efnahagsráðherra sambandslandsins Hamborgar og var viðstödd móttöku fyrirhugaðs kjörræðismann Íslands í Hamborg, þar sem einnig voru staddir fulltrúa íslenskra og þýskra fyrirtækja.